Hliðarvalmynd skipt upp
Hliðarvalmynd launa hefur verið skipt upp í Aðgerðir og Listar og stofnskár.
Aðgangsstýring að listanum Orlofsyfirlit
Aðgangsstýringu hefur verið bætt í listann Orlofsyfirlit svo yfirmenn sjái eingöngu sína starfsmenn í þessum lista.
Aldursmörk vegna greiðslna í lífeyrissjóði utan marka
(APPAIL-1837)
Út frá kennitölu viðkomandi starfsmanns er innbyggð reikniregla að ekki sé áskilinn lífeyrissjóður hjá þeim sem eru yngri en 16 ára og þeim sem eru eldri en 70 ára. Athugað er hvort viðkomandi er orðinn 16 eða 70 ára í mánuðinum eftir afmælisdaginn.
Aldursmörk vegna greiðslna í lífeyrissjóði innan marka
(APPAIL-1838)
Til þess að stilla inn athugasemdir:
Skrá laun > Fellival í tækjaslá "Reiknir" > Reiknireglur:
Stofna reiknireglu númer 9399 "Almennur lífeyrissjóður reiknast ekki"
Skrá launalið nr. 9998 á reikniregluna.
Pay Calc Rule ID = 9399
Pay Calc Rule Name = Almennur lífeyrissjóður reiknast ekki
Pay Cal ID = 300
Pay Wage ID = 9998
Líf- og starfsaldur
(APPAIL-2312)
Svæðið "95 ára regla" er komin inn í "Velja svið" í listanum Kjarni - Mannauður - Lífeyrissjóður.
Afrita launatöflu í kjarasamningi núll
APPAIL-2033
Hægt er að hækka töfluna undir kjarasamningi núll með því að hægri smella og velja hækka töflu. Breyta þarf dagsetningu nýju töflunnar, dagsetning getur ekki verið sú sama. Þá afritast gögn úr eldri töflu í nýja töflu.
Grunnlaunaspjald - gildistími og útborgunartímabil
APPAIL-2311
Ef eftirágreiddur er að fá launabreytingu fram í tímann og þar með nýtt grunnlaunaspjald þá tekur nýja spjaldið ekki gildi fyrr en í þeirri útborgun. Núverandi útborgun tekur mið af gamla grunnlaunaspjaldinu.
Lífeyrissjóðsspjald launamanns - hlutföll
APPAIL-2251
Ef að starfsmaður greiðir annað hlutfall eða mótframlag en það sem er í stofngögnum lífeyrissjóðs, þá má yfirskrifa hlutföll í lífeyrissjóðsspjaldi starfsmannsins. Ef starfsmaður greiðir sama hlutfall og skráð er í stofngögnum
Ávinnsla orlofs- og desemberuppbótar
APPAIL-2260
Ávinnsla uppbóta notar nú samtölur réttinda, í stað tímaeiningar
Stofna útborgun - útborgunarnúmer
APPAIL-2270
Sjálfgefin útborgunarnúmer taka nú tillit til ártals útborgunar. Þannig fær ný útborgun númerið 02 á nýju ári í stað 02-01
Ávinnslur sóttar
APPAIL-2156
Ávinnslur sækjast nú einnig fyrir þá útborgun sem sem hún er sótt í.
Skuldbinding - senda í launaskráningu
APPAIL-2291
Eftir að ávinnslur hafa verið sóttar í ávinnsluskrá er aðgerðarhjól valið til að senda ávinnslur uppbóta í launaskráningu.
Starfsmenn sem hafa verið gerðir upp áður koma ekki með í þessa skráningu.
Villumelding í reikningi launa sé skýrari
APPAIL-1687
Villumeldingar við launareikning koma í töflulista. Hægt að smella á villuboð og laga spjöld þegar við á og reikna aftur.
Skilagreinar - bæta við gjaldategundum stéttarfélaga
APPAIL-2264
Bætt var við tegundinni Prentæknisjóður = bókstafur E og Sérstakt gjald skv.bókun = bókstafur C
Bunkainnlestur - yfirskrifa upphæðir úr launatöflu
APPAIL-2024
Ef upphæð er í innlestrarskjali þá yfirskrifar hún þá upphæð sem á að sækja í launatöflu.
Barnaskattur 6% fyrir þá sem eru yngri en 16 ára
APPAIL-2098
Stofna þarf nýjan launalið nr. 9180 Barnaskattur, best að afrita launalið 9141.
Vegna frítekjumarks barna er skráður ónýttur persónuafsláttur í skattkort = 10.800. Ath. engin prósenta er skráð á skattkort barns.
Loka útborgun - breyta texta á hnappi
APPAIL-2108
Þegar útborgun er lokað eru tveir hnappar í valskjá, Loka útborgun og Hætta við.
Sækja ávinnslur - bæta við ártali í valskjá
APPAIL-2289
Almanaksár kemur ekki lengur upp í valskjá þegar ávinnslur eru sóttar, aðeins orlofsárið.
Skuldbinding - fastir launaliðir fyrir skuldbindingu
APPAIL-1263
Aftast í hverri línu fyrir fastan launalið er hægt að velja hvaða færsluskrá fastur liður tilheyrir. Ef ekkert er skráð þar er launaliður gildur í öllum skrám, þ.e. launum, skuldbindingu og áætlun.
Þó svo að starfsmaður taki sér launalaust leyfi þá er hægt að halda föstum launaliðum hans áfram virkum i skuldbindingu og áætlun.
Uppgjör vegna starfsloka
APPAIL-2146
Hægt er að láta skuldbindingu reiknast eins og annar launaliður.
Gjaldheimtur - skrá netfang viðtakanda
APPAIL-2166
Í stofngögnum launa : Kjarni > Laun > Gjaldheimtur, er komið svæði fyrir netfang viðtökuaðila. Nú er hægt að senda skilagreinar gjaldheimtna í tölvupósti, beint úr "Skila" í launahring.
Grunnlaunaspjald - taka út "Velja" hnapp þegar launaflokkur er valin úr launatöflu
APPAIL-1912
Hnappur Velja hefur verið fjarlægður þegar valinn er launaflokkur í gegnum grunnlaunaspjald starfsmanns. Í staðinn þarf að tvísmella á þann launaflokk sem á að velja úr launatöflu eða handskrá inn númerið.
Skrá laun - bæta við fríska hnappi í starfsammatré
APPAIL-2082
Í launaskráningu er kominn fríska hnappur fyrir starfsmannatré.
Velja dálka - bæta við svæðum í lista fyrir launaliði
APPAIL-2130
Listinn launaliðir hefur verið uppfærður með nýjum svæðum út spjaldinu.
Bunkar - eyða bunka úr innlestri
APPAIL-2252
Listinn launaliðir hefur verið uppfærður með nýjum svæðum út spjaldinu.
Velja dálka - bæta við svæðum í lista fyrir lífeyrissjóði
APPAIL-2132
Listinn Lífeyrissjóður uppfærður með nýjum svæðum úr spjaldinu.
Velja dálka - bæta við svæðum í lista fyrir stéttarfélög
APPAIL-2165
Listinn Stéttarfélög uppfærður með nýjum svæðum úr spjaldinu.
Velja dálka - Trégerð skipulagseininga
APPAIL-2028
Svæðinu bókhaldslykill var bætt inn í trégerðina fyrir skipulagseiningar.
Láta villur og aðvaranir sjást í launaskráningu
APPAIL-2314
Ef reiknivél er með athugasemd eða sendir frá sér villumeldingu þá kemur hún fram í skráningarmyndinni skráð með rauðu letri.
Staðgreiðsla - reikningur
APPAIL-2388
Launaliður 9140 Eldri stofn til staðgreiðslu, tengdur inn í launareiknivél á ný. Þessi launaliður hækkar skattstofn þannig að staðgreiðsla reiknast í hærra skattþrep.
Grunnlaunaspjald - gildisdagsetningar
APPAIL-2397
Samningur, launaflokkur og þrep er sótt út frá samspili gildistíma spjalds og gildistíma útborgunar út frá greiðsluformi starfsmanns.
Dæmi. Gildistími útborgunar er frá 1.apríl 2016 til 31.maí 2016. Starfsmaður er eftirágreiddur. Samningur, launaflokkur og þrep er sótt í grunnlaunaspjald starfsmanns sem er í gildi í apríl 2016, þó svo að starfsmaður eigi gilt grunnlaunaspjald frá 1.maí 2016 - svo framarlega sem launafærslur eru dagsettar á tímabilinu frá 1. til 30.apríl 2016.