Skýrslur - Formbréf grunnur - dálkar að koma tómir
Þegar skýrslan Formbréf grunnur var keyrð upp og dálkarnir Almennur lífeyrissjóður, Séreignalífeyrissjóður og Stéttarfélag voru dregnir inn í skýrsluna þá komu þeir tómir. Þetta hefur nú verið lagað.
Mail merge svæði ekki að virka
Mail merge svæðin voru ekki að skila sér rétt í bréfin fyrir áminningarnar í einhverjum tilfellum. Þetta hefur verið lagað. Auk þess var dagsetning fyrir reynsluráðningu ekki að koma rétt en hefur verið lagfært.
Starfsmannaspjald - Nafn lands birtist í þjóðernissvæðinu í stað þjóðernis.
Þegar þjóðerni var valið inn í starfsmannaspjaldið þá birtist nafn landsins í því svæði í stað þjóðernis. Þetta hefur nú verið lagað. Ath. að til þess að þjóðerni birtist í þessu svæði þarf að vera búið að setja inn þjóðerni í töflunni Lönd undir Stofnskrár > Lönd.