Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 28 Current »

Fyrsta útgáfa viðveruhlutans kom út í upphafi árs 2020 í útgáfu 20.1.1. Þetta er viðbótarkerfishluti við Kjarna. Ef viðskiptavinir vilja bæta þessum kerfishluta við Kjarna samninginn sinn skal senda póst á service@origo.is og sendar verða upplýsingar um verð.

Í þessari fyrstu útgáfu er t.d. hægt að hafa á spjaldtölvu með kortalesara þannig að starfsmenn geti stimplað sig inn með aðgangskortinu sínu. Einnig er hægt að skrá inn kennitölu ef starfsmaður er ekki með aðgangskort.

Aðgangskort starfsmanns er skráð í launamannaspjald starfsmanns í Kjarna.

Í hliðarvalmynd Kjarna er hægt að nálgast stillingar í tengslum við stimpilklukkuna sjálfa (Stimpilklukka), þær tegundir stimplunar sem eru í boði (Tegund stimplunar) ásamt skráningum starfsmanna (Stimplun).

Viðskiptavinir geta sjálfir sett inn viðeigandi stillingar í Kjarna en viðmótið fyrir viðveruna er sett upp í samráði við starfsmenn Origo sem hluti af innleiðingu á þessum kerfishluta.

Stillingar í Kjarna eru settar upp í Tegund stimplunar og Stimpilklukka.

Hlekkur á viðveruhlutann á Kjarnavefnum má finna hér Viðvera á vef

Hlekkur á viðveruhlutann á starfsmannavefnum má finna hér https://kjarni.atlassian.net/wiki/pages/resumedraft.action?draftId=1730445316

  • No labels