Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 11 Next »

Vefgildi sem stýrir birtingu fjölda aukastafa á einingum í launasamþykkt á vef

APPAIL-8684

Útbúið hefur verið vefgildi sem stýrir birtingu aukastafa í launasamþykkt á vef. Vefgildið heitir Kjarni.Web.PayEmployeeApprove.Digits og er fjöldi aukastafa skráður í “Gildi”

Nýir litir á upphafssíðu Kjarnavefs

APPAIL-8906

Litum á mælaborðum fyrir Mannauð og Ráðningar á upphafssíðu Kjarnavefs var breytt í samræmi við hönnunarstaðal Kjarna.

Launaþróunarskýrsla - bæta inn síu við dálkinn staða

APPAIL-7983

Síu hefur verið bætt við dálkinn “Staða” í launaþróunarskýrslu þannig að hægt sé að skoða einungis starfsmenn sem gegna ákveðinni stöðu. Staða/stöður sem skoða á eru valdar og smellt á staðfesta til að fá nýja sýn upp.

Launaáætlun - Skýrsla fyrir stjórnendur

APPAIL-7729

Útbúin hefur verið launaáætlunar skýrsla á vef fyrir stjórnendur sem er aðgengileg í upphafsvalmynd áætlunar. Sjá nánar hér: Launaáætlun á vef

Mannauður > Teymið mitt - röðun hæfni breytt

APPAIL-8533

Röðun á hæfni var breytt í Teymið mitt þannig að nú birtist nýjasta skráða hæfnin efst í listanum undir hæfni.

Mannauður > Teymið mitt - Birting starfsaldurs

APPAIL-8995

Starfsaldur undir Teymið mitt á Kjarna vef var ekki að birtast rétt þegar kveikt var útreikningi útfrá greiddum stöðugildum. Þetta hefur verið lagfært og báðar starfsaldurs aðferðir birtast rétt á vef.

Mannauður > Teymið mitt - ný flís fyrir Tenging innan fyrirtækis

APPAIL-8345

Bætt hefur verið við flís fyrir Tenging innan fyrirtækis þar sem hægt er að sjá flestar þær upplýsingar sem skráðar eru í spjaldið. Auk þess er hægt að sjá fyrri færslur og framtíðarfærslur. Hægt er að fela þessa flís og ef óskað er eftir því skal senda beiðni á service@origo.is

Mannauður > Teymið mitt - starfslýsingar

APPAIL-8859

Núna kemur hlekkur á starfslýsinguna undir Teymið mitt á flísinni Tenging innan fyrirtækis. Starfslýsing birtist fyrir núverandi virka færslu.

Mannauður > Teymið mitt - Grunnlaunaspjald

APPAIL-8607

Álagi var bætt við grunnlaunaflísina í Teymið mitt. Þetta eru svæðin Símenntunarálag, Menntunarálag, Stjórnunarálag og Tryggðarálag sem birtast ef eitthvað gildi er skráð í svæðin.

Mannauður > Starfsmannalisti - smella á starfsmann til að fá frekari upplýsingar

APPAIL-8472

Bætt hefur verið við virkni að núna er hægt að smella á starfsmann í starfsmannalistanum og fá upp frekari upplýsingar um starfsmanninn. Er þetta sama sýn og er fyrir starfsmenn í Teymið mitt.

Rafrænar undirritanir - bæta við kennitölu í undirskrift

APPAIL-8805

Kennitölu hefur verið bætt við undirskrift í rafrænum undirritunum.

  • No labels