Stofngögn vegna skýrslunnar Markaðslaun PwC eru sótt á ýmsa staði í kerfinu en því til viðbótar þarf að setja inn stillingar á gráður og stöður auk þess sem stilla þarf hvaða starfsaldurstegund á að miða við ef starfsmenn eru með skráðan viðbótarstarfsaldur.
Stillingar > Gildi
Númer | Nafn | Kódi | Gildi | Athugasemdir notenda, ekki skráðar í töfluna :) |
Hlaupandi | PwC | Kjarakannanir | true | Ef fyrirtæki notar ekki PwC skýrsluna er gildið false. Þá er lokað á öll svæði í Kjarna tengd PwC |
númer | PwC.PayListID | Kjarakannanir | 20 | Þetta er númer þess dálkalista sem skýrslan sækir launagögn í. |
PwC.OrgCompanyID | Kjarakannanir | 6 | ||
PwC.HrSeniorityID | Kjarakannanir | 3 | Þetta er númer þeirrar starfsaldurstegundar sem nota skal í skýrsluna. |
Gráður
Stillingar á gráður eru settar inn undir Kjarni > Stofnskrár > Menntun - Gráður. Þar er að finna svæðið PwC - Stig menntunar.
Fljótlegra getur verið að skrá þessa flokkun í gegnum Select lista.
Select listann er hægt að nálgast með því að smella á Select hnappinn í listanum yfir gráðurnar.
Þannig er hægt að viðhalda gögnunum beint í listanum án þess að þurfa að opna hverja gráðu fyrir sig.
Athugið að passa upp á að vista listann þegar gögnunum hefur verið viðhaldið.
Ef upplýsingar birtast ekki í svæðinum "Stig menntunar" og "Svið menntunar í iðnskóla og háskóla" í skýrslunni Markaðslaun PwC þegar hún er keyrð upp þarf að skoða menntunarspjald þeirra starfsmanna.
Dagsetningar þurfa að vera í svæðunum "Hóf nám" og "Lauk námi" svo þessi svæði sé birt í skýrslunni fyrir viðkomandi starfsmann.
Stöður
Stillingar á stöður eru settar inn undir Kjarni > Stofnskrár > Stöður.
Þar er að finna eftirtalin svæði:
- Staða gagnvart öðrum
- Einn af æðstu stjórnendum fyrirtækisins?
- Þrepanúmer æðstu stjórnenda í skipuriti
Þessum upplýsingum er líka hægt að viðhalda í gegnum Select lista á sama hátt og lýst er hér að ofan varðandi gráðurnar.
Tegund starfsaldurs
Í Stillingar> Gildi er sett inn númer þeirrar starfsaldurstegundar sem miða á við í skýrslunni. Stillingin er PwC.SeniorityID.
Númer viðeigandi starfsaldurstegundar er að finna í hliðarvalmynd Kjarni > Stofnskrár > Starfsaldur - Tegundir.