Orlofsbeiðnayfirlit
Núna er hægt að birta Orlofsbeiðnayfirlit í hliðarvalmynd á starfsmannavefnum. Birtir yfirlitið orlofsbeiðnir starfsmannsins og starfsmanna sem eru í sömu skipulagseiningu og starfsmaðurinn. Ef óskað er eftir því að birta Orlofsbeiðnayfirlit á starfsmannavefnum skal senda beiðni á service@origo.is
Orlofsbeiðni - breyting tengd orlofstékki
Breyting var gerð þegar verið er að skrá/samþykkja orlofsbeiðni. Ef kveikt er á orlofstékki þá er núna hægt að skrá orlofsbeiðni/samþykkja orlofsbeiðni þrátt fyrir að vera ekki í Kjarna viðveru (hakað í Kjarni viðvera í vinnutímaspjaldi). Ef starfsmaður er í Kjarni viðvera þá er tékkað á orlofsstöðu þegar skráð er orlofsbeiðni.
Mötuneyti og verslanir - merkja færslur
Undir Mötuneyti og verslanir eru tveir listar, annars vegar Starfsmaður og hins vegar Gestir fyrirtækis. Í listanum Starfsmaður var ekki greint á milli tegund færslu, þ.e. hvort færslan væri fyrir starfsmann eða gest starfsmanns og því erfitt að sjá hvaða færslur tilheyrðu gesti starfsmanns. Búið er að bæta við tegund færslu í listann.
Starfsmannavefur - Birta launamiða
Nú er hægt að birta launamiða á starfsmannavef. Til þess að virkja birtinguna þarf að bæta línu í hlutverkið starfsmannavefur. Hægt er að senda beiðni á service@origo.is til að óska eftir þessari viðbót.
Dagpeningabeiðni - bæta við textasvæði fyrir athugasemdir
Notendur geta núna skráð athugasemdir þegar þeir stofna dagpeningabeiðnir á starfsmannavef.