Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 18 Next »

Leit í lista þegar nýir dálkar eru valdir inn í lista

APPAIL-3294

Þegar smellt er á Iconið "velja dálka" í tækjastikunni til að velja inn dálka í lista og skýrslur er nú hægt að leita í listanum sem poppar upp að því gildi sem á að velja inn í listann.

Millisummur flytjist með þegar listar eru fluttir yfir í Excel

APPAIL-1184

Ef kveikt er á millisummum í listum þá flytjast þær nú með þegar listar eru fluttir yfir í Excel. 

Geymslusvæði aðgengileg eftir flutning yfir í Excel

APPAIL-2220 & APPAIL-3329

Geymslusvæðin eru nú áfram aðgengileg í Kjarna ef skýrsla er flutt yfir í Excel en svo er ákveðið að vinna áfram með skýrsluna inni í Kjarna.

Athugið að Í eldri vistuðum listum er möguleiki að þessi geymslusvæði verði sýnileg líka inni í Excel. Það er að sjálfsögðu hægt að eyða efstu línunum út úr Excel skjalinu til þess að losna við þessi svæði en það er líka hægt að setja inn stillingar í listann sem koma í veg fyrir að geymslusvæðin birtist í Excel. 

Kveikt er á þessum stillingum með því að smella á hnappinn Stillir 

Farið er í Options > OptionsPrint og stillingar PrintColumnHeaders, PrintDataHeaders og PrintUnusedFilterFields settar á False og svo vistað ofan í listann með Geyma sniðmát hnappinum. 

Línur í listum séu ekki "merge-aðar" við flutning í Excel

APPAIL-3327

Í Kjarna eru línur í greiningarlistum "merge-aðar" þannig að ef sama gildið tilheyrir mörgum línum þá komi gildið bara í efstu línunni en ekki línunum þar fyrir neðan sem tilheyra þessu sama gildi. Þegar gögnin eru flutt yfir í Excel þá er betra að línurnar haldist ekki "merge-aðar". Stillingu hefur því verið bætt inn í lista þannig að línurnar komi ekki "merge-aðir" þegar listar eru fluttir yfir í Excel. 

Athugið að þetta á eingöngu við um nýja lista en ekki lista sem hafa verið vistaðir niður í Möppur. Það er aftur á móti hægt að setja inn stillingu í eldri lista svo þetta virki eins í þeim, sambærilegt og í punktinum hér á undan. 

Kveikt er á þessari stillingu með því að smella á hnappinn Stillir 

Farið er í Options > OptionsPrint og stillingin MergeRowFieldValues sett á False og svo vistað ofan í listann með Geyma sniðmát hnappinum. 

Bætt villuskilaboð við flutning í Excel ef annað skjal úr Kjarna er þegar opið

APPAIL-3267

Ef notandi hefur flutt lista úr Kjarna yfir í Excel og er enn með það skjal opið, með tempfile nafninu sem skjalið fær, hefur alltaf komið villumelding þegar reynt er að taka annan lista úr Kjarna yfir í Excel. Þessi villuboð hafa nú verið gerð enn skýrari svo það fari ekki á milli mála að loka þurfi fyrra skjalinu eða vista það niður áður en hægt sé að taka seinna skjalið yfir í Excel. 

Leitarsvæði birtist default í notendalista

APPAIL-3257

Þegar komið er inn í lista yfir notendur er defailt kveikt á leitarsvæðinu þannig að hægt sé að slá beint ín í svæðin notandanafn eða nafn til þess að leita að notanda. 

Útreikningslína neðst í öllum töflulistum

APPAIL-3328

Útreikningslínu hefur verið bætt við neðst í alla töflulista. Hægt er að hægri smella í línuna og velja summu, lágmark, hámark, fjölda eða meðaltal, eftir því sem við á. Með þessu móti er fljótlegt að fá talningu á starfsmannafjölda í viðkomandi lista, reikna út meðalaldur eða meðalstarfsaldur starfsmannanna í lista eða fá upp aldur elsta eða yngsta starfsmannsins í listanum, hæstu eða lægstu launin í listanum, svo eitthvað sé nefnt. 

Skilyrði á valskjá og útlit á skýrslum (layout) vistist með listum

APPAIL-3111 & APPAIL-3377

Farið var yfir Vista virknina fyrir lista þannig að skilyrði sem skráð eru á valskjá og breytingar á útliti (síur, breytingar á dálkum, o.s.frv.) vistist með listanum þegar hann er vistaður niður í Möppur. Þegar vistaðir listar eru keyrðir upp úr Möppur eða af upphafsvalmyndum þá keyrast þeir upp nákvæmlega eins og þeir voru vistaðir niður m.t.t. skilyrða á valskjá og útlits (layout).

List hnappur aðgengilegur í Select listum

APPAIL-3260

Select hnappur er aðgengilegur í List listum þannig að hægt sé að fara í viðhald beint í listanum án þess að tvísmella á línu í listanum til þess að viðhalda færslu. Nú hefur List hnappi verið bætt í alla Select lista þannig að hægt sé að fara tilbaka í þá tegund af listum úr Select listum. 

Birta/fela spjöldin Intellecta og Efla í starfsmannatré

APPAIL-3333 

Nú er hægt að birta eða fela spjöldin Intellecta og Efla í starfsmannatrénu. Til að birta spjöldin er sett stilling í Xap Gildi (Intellecta - true), (Efla - true) og til að fela þau er sett false í staðin fyrir true. 

Stillingar fyrir skilyrt svæði

APPAIL-3373

Í stillitöflu er nú hægt að skilgreina að svæði í Kjarna eigi að vera skilyrt eða hvort það eigi að koma viðvörun eða upplýsingar við svæði. Hægt er að skilgreina þetta fyrir nánast öll starfmannaspjöld auk skjámynda í ráðningum og fræðslu. Virkninni verður bætt við fleiri staði í Kjarna eftir þörfum. Ráðgjafar hjá Applicon geta sett inn viðeigandi stillingar eða leiðbeint lykilnotendum um hvernig það er gert. 


  • No labels