Dagsetningar í valskjá
APPAIL-3281, APPAIL-3286, APPAIL-3285, APPAIL-3282, APPAIL-3303, APPAIL-3283
Yfirfarin var öll dagsetningavirkni í valskjá listanna í Kjarni > Mannauður. Valskjárinn horfir á spjaldið Tenging innan fyrirtækis og listinn birtir starfsmenn út frá þeim skilyrðum sem þar eru sett, t.d. starfsmenn sem eru í starfi í dag, starfsmenn sem voru í fæðingarorlofi í febrúar sl., starfsmenn ákveðinnar skipulagseiningar á ákveðnum degi. Þessi dagsetningaskilyrði á valskjánum horfa aftur á móti ekki á gögnin í viðkomandi lista heldur birtast allar færslur sem skráðar eru í viðkomandi spjald fyrir þá starfsmenn sem uppfylla skilyrðin á valskjánum. Til stendur að bæta við viðbótartakmörkun á valskjáinn sem á þá við um hvert spjald fyrir sig. Þannig væri hægt t.d. að takmarka listann strax við ákveðna tegund náms eða gráðu, ákveðinn kjarasamning eða dagsetningu námskeiðs.
Viðhald gagna í listanum Menntun
Bætt var við svæðum í Select listann Menntun þar sem hægt er að viðhalda og breyta gögnum beint í listanum án þess að þurfa að fara inn í spjald viðkomandi starfsmanns.
Vartölupróf á kennitölusvæði
Þegar kennitala er ekki til í þjóðskrá kemur kerfið nú upp með villu um að kennitala sé ekki til eða að hún sé ekki lögleg.
Þjóðerni bætt við í listana Ráðningarsamningur / Formbréf - grunnur / Tenging innan fyrirtækis
Gildinu þjóðerni hefur verið bætt inn í ofangreinda lista.
Vöntunarlisti - viðbótarsvæði
Svæðinu Ráðningardagsetning hefur verið bætt við listann Vöntunarlisti - réttindi.
Listinn Starfsmenn yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Starfsmenn er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður. Svæðunum Aðstandandi tengsl, Sakavottorð og Starfsaldursviðmið var einnig bætt við í Velja dálka þannig að hægt sé að draga þau inn í listann.
Listinn Réttindi yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Réttindi er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður. Öllum helstu svæðunum úr spjaldinu Starfsmaður og spjaldinu Tenging innan fyrirtækis var bætt við í Velja dálka þannig að hægt sé að draga þau inn í listann.
Listinn Tenging innan fyrirtækis yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Tenging innan fyrirtækis er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður. Svæðinu Annað stöðuheiti var einnig bætt við í Velja dálka þannig að hægt sé að draga það inn í listann.
Listinn Menntun yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Menntun er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður. Svæðinu Netfang var einnig bætt við í Velja dálka þannig að hægt sé að draga það inn í listann.
Listinn Banki yfirfarinn
Listinn Námskeið yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Námskeið er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður. Svæðinu Netfang var einnig bætt við í Velja dálka þannig að hægt sé að draga það inn í listann.
Listinn Til minnis yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Til minnis er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður.
Listinn Vinnutími yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Vinnutími er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður.
Listinn Hlutir í láni yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Hlutir í láni er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður. Öllum helstu svæðunum úr spjaldinu Starfsmaður og spjaldinu Tenging innan fyrirtækis var bætt við í Velja dálka þannig að hægt sé að draga þau inn í listann.
Listinn Hæfni yfirfarinn
Farið var yfir þau svæði sem birtast þegar listinn Hæfni er keyrður upp úr hliðarvalmynd, Kjarni > Mannauður. Öllum helstu svæðunum úr spjaldinu Starfsmaður og spjaldinu Tenging innan fyrirtækis var bætt við í Velja dálka þannig að hægt sé að draga þau inn í listann.
Listinn Til minnis á helluvalmynd
Listinn Til minnis á helluvalmynd birtir núna bara þær færslur þar sem hakað er við Sýna. Þetta er hægt að stilla öðruvísi hjá viðskiptavinum sé þess óskað. Ráðgjafar Applicon geta þá leiðbeint varðandi það.
Áminningar ef viðtakendur erfðir af skipulagseiningu
Ef viðtakendur áminninga erfast á starfsmann af skipulagseiningu þá fá þeir sendar áminningar á sama hátt og þegar viðtakendur eru skráðir beint á starfsmann í spjaldið Tenging innan fyrirtækis.