Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 15 Current »

Ný vefþjónusta hjá RSK

APPAIL-3161

RSK fer fram á ítarlegri upplýsingar með staðgreiðsluskilum, aðgerðin fyrir vefskil staðgreiðslu hefur nú verið uppfærð samkvæmt kröfum RSK.

Færslur í fyrirtækjalista

APPAIL-3527

Í fyrirtækjalistanum voru færslur sem voru í svæðunum Undirsvæði, Staðsetning og Ráðningarmerking að birtast út frá bókunardegi launa. Það gerði það að verkum að færslurnar voru ekki að koma í lista ef að starfsmaður byrjaði eftir bókunardag viðkomandi launafærslu. Þessu hefur nú verið breytt á þann máta að færslurnar birtast núna út frá mánuði bókunar, en ekki bókunardagsetningunni sjálfri. 

Færslur í bankaspjaldi

APPAIL-3316

Bankaspjaldið leyfir nú einungis eina opna færslu af hverri tegund í spjaldinu.

Athugasemdasvæði við launatöflur

APPAIL-3420

Búið er að bæta við athugasemdasvæði við hverja launatöflu í listanum launatöflur. Svæðið er hugsað fyrir minnispunkta um viðkomandi töflu, t.d. upplýsingar um hversu mikið taflan hækkaði frá síðustu töflu o.s.f.rv.

Reikniliðir - texti breytist í heiti launaliða

APPAIL-3464

Nú halda reikniliðir aftur nafni sínu, þó svo að tímabili sé breytt.

Gjaldheimtu skilagreinar með mínus tölu og rangar skrár

APPAIL-3515

Ef upphæðir voru í mínus kom mínusinn ekki á réttum stað í txt skránni.  Einnig kom það fyrir að skrár víxluðust þegar margar skrár voru sendar samtímis með aðgerðinn Senda með pósti. Þetta hefur nú verið lagað.

Hækkun á launatöflum afritar aldurshækkunarskilgreiningar með

APPAIL-3096

Hækkunarreglur fylgja nú með þegar launatafla er hækkuð.

Launaseðill - samantekt launaliða

APPAIL-3467

Þegar launaliður er yfirskrifaður kemur hann nú í sér línu á launaseðli.

Stilla tímabil vetrarorlofs

APPAIL-3535

Aðgerðin Leiðrétta vetrarorlof var útbúin fyrir einn viðskiptavin og var "harðkódað" á ákveðna kjarasamningan og ákveðið tímabil.

Fyrsta skrefið til að gera þetta að almennri stillingu er að stofna gildi í flipanum XAP fyrir notendur, til að velja inn tímabil og hlutfall. Síðar kemur inn möguleikinn á að velja kjarasamninga.

Fyrsta línan í hjálagðri töflu vísar til þess að úttekið orlof á að vera 75% af upphaflegri skráningu, eftir að leiðrétting hefur verið keyrð. Þannig koma -2 tímar ef úttekt er 8 tímar.

NafnKódiGildi
Poet.WinterHoliday.RatioLeiðrétting vetrarorlofs0,75
Poet.WinterHoliday.FromMonthLeiðrétting vetrarorlofs10
Poet.WinterHoliday.ToMonthLeiðrétting vetrarorlofs4

Mínuslaun á bankaskilagrein

APPAIL-3237

Þegar smellt er á bankaskilagrein opnast listi yfir alla launamenn í útborgun ásamt upplýsingum um bankareikning þeirra og þá upphæð sem verður greidd inn á viðkomandi reikning.

Ef útborguð laun eru mínustala, koma skilaboð þess efnis á skáinn áður en skilagreinin birtist. Upphæðin kemur síðan rauðletruð á skilagrein.

Endurvinna áramótastöðu

APPAIL-3548

Aðgerðin að endurvinna áramótastöðu var bætt og ræður nú betur við mikið færslumagn.

Mötuneytisbunki úr Vinnustund

APPAIL-3029

Í valglugga fyrir "Innlestur úr tímaskráningakerfi" hefur verið bætt inn fellivali þar sem verður að velja hvort sækja eigi tímaskránigarbunka eða mötuneytisbunka.

Ástæðan er mismundi skráaruppsetning þar sem upphæð var bætt við mötuneystibunka.


  • No labels