Flipinn Sýna öll námskeið tekinn út úr námskeiðstré
Flipinn Sýna öll námskeið var tekinn út úr námskeiðstrénu. Þegar mikið magn af námskeiðum er komið í kerfið þá verður þess aðgerð óþarflega hæg þar sem verið er að kalla fram öll námskeið sem hafa verið stofnuð. Það er mun betra að fletta liðnum námskeiðum upp í námskeiðalistanum sem er aðgengilegur í hliðarvalmyndinni undir Kjarni > Fræðsla. Það er valskjár ofan á þann lista þannig að hægt er að takmarka valið við ákveðin námskeið og dagsetningar.
Valskjár ofan á námskeiðslistann
Bætt hefur verið verið valskjá ofan á námskeiðslistann (Course.List) sem hægt er að nálgast í hliðarvalmynd undir Kjarni > Námskeið > Námskeiðslisti. Listinn keyrist upp í heild sinni en hægt er að kalla á valskjáinn með því að velja fríska hnappinn. Hægt er að leita eftir dagsetningu, heiti námskeiðs, tegund námskeiðs, námskeiðsflokk og stöðu námskeiðs.
Tvö ný svæði á námskeið - styrkupphæð og staða styrks
Tveimur nýjum svæðum hefur verið bætt við á námskeið, styrkupphæð og staða styrks. Þessi svæði birtast ekki í starfsmannavefnum. Þessum svæðum var einnig bætt við sem gildum í námskeiðslistann.
Opna áður staðfest/lokuð námskeið
Búið er að opna fyrir það að opna á staðfest/lokuð námskeið í fræðsluhluta kerfisins. Þegar námskeið er staðfest fara allar upplýsingar yfir í viðeigandi spjöld í starfsmannahluta kerfisins (Námskeiðs-, hæfni-, og réttindaspjöld). Þegar stöðu námskeiðs er breytt úr staðfest í virkt þá afturkallar kerfið allar þessar færslur í áður nefndum spjöldum. Þegar námskeiðið er síðan staðfest aftur fara þessar upplýsingar aftur yfir í viðeigandi spjöld.