Breyta lykilorði á vef
Bætt var við virkni í starfsmannavefnum undir Valmynd > Stillingar þar sem notandi getur breytt lykilorðinu sínu.
Upplýsingar um launareikning
Upplýsingar um launareikning eru núna birtar undir Valmynd > Launaupplýsingar. Upplýsingar um orlofsreikning eru ekki birtar. Notandinn getur breytt launareikningi sínum hafi hann aðgang að því.
Stillingar fyrir birtingu á starfsmannavef
Búið er að bæta við virkni þannig að nú er hægt að stilla hvaða spjöld sjást á forsíðunni á starfsmannavefnum og undir valmynd. Ef viðskiptavinir óska eftir að láta fela einhver spjöld þarf að senda póst á service@applicon.is þar sem er tiltekið hvaða spjald á að fela.
Starfsmannamyndir í starfsmannaleit
Starfsmannamyndir voru ekki að birtast í starfsmannaleitinni á starfsmannavefnum bara á upphafssíðu starfsmanns. Þetta hefur nú verið lagað.