Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 18 Next »

Lagfæring á útreikning í spjaldinu Vinnutími

APPAIL-3822 & APPAIL-3666

Spjaldið vinnutími reiknar fjölda vinnustunda á mánuði. Spjaldið sýndi allaf töluna 173,36 fyrir fullt starf en rétt tala er 173,33. Margföldunarstuðlinum á bakvið formúluna var breytt úr 21,67 í 21,66625 þannig að niðurstaðan birtir 173,33. 

Bætt var við svæðinu Fj.tíma á mán. 100% Þar kemur talan 173,33 fram ef vinnuskylda á dag er 8 tímar m.v. fullt starf, sama hvert starfshlutfall starfsmanns er.

Orlofsuppgjör - deilitala úr vinnutímaspjaldi

APPAIL-3666

Fj.tíma í mán. 100% úr vinnutímaspjaldi starfsmanna er sú tala sem notuð er í dag til að umreikna áunna orlofstíma til launa, hvort heldur sem það er við uppgjör vegna starfsloka eða við útreikning á skuldbindingu fyrirtækis.

Breyta texta í skjámynd - Launaliðir

APPAIL-3897

Í skjámynd fyrir launaliði var texta í flipanum Reikniform breytt úr Staðgr.tímabil í Greiðsluform

Lífeyrissjóður - upplýsingar af sjóðnum birtist í spjaldi en gráar

APPAIL-3865

Þegar lífeyrissjóðsspjald starfsmanns er skoðað eru birtar upplýsingar beint úr stofngögnum lífeyrissjóðs - ef valin er reiknireglan Reiknast eins og sjóður, sjá mynd.

Athugið að til þess að þessar upplýsingar komi fram þá verða að vera skráðar dagsetningar á færslurnar í flipanum "Launaútreikningur" í stofngögnum lífeyrissjóða. Annars verða gráu reitirnir áfram tómir.

Ef fleiri en ein lína er skráð í flipann "Launaútreikningur" err sóttar upplýsingar út frá þeim degi sem spjaldið er skoðað (ToDay)

 

Yfirfara listann fyrir lífeyrissjóði "EmployeeDetailPension"

APPAIL-3307

Nú er hægt að sækja mun fleiri svæði inn í listann Lífeyrissjóður í hliðarvali > Kjarni > Mannauður

Bætt var við svæðunum Fyrirtæki,nafn og númer, Kostnaðarstöð, nafn og númer, Skipulagseining, nafn og númer, Staða, nafn og númer, Reiknitegund, nafn, Staðsetning, nafn og númer, Ráðningarmerking og Tegund ráðningar

Svæðinu gjalddagi bætt í lista

 APPAIL-3854

Svæðinu gjalddagi var bætt við inn í listana fyrir Innheimtur, Lífeyrissjóður og Stéttarfélög.

Flakka á milli starfsmannatrés og launaútborgunar - villandi

APPAIL-3542

Unnið er með starfsmann í skrá laun
◾Farið í Hliðarval > Flipinn Starfsmenn > Annar starfsmaður valinn þar og skoðaður
◾Farið aftur í flipann Skrá laun og smellt á spjald þess sem unnið var með í skráningu
◾Upp kom spjald starfsmanns sem skoðaður var í starfsmanna tré ! Ekki þess starfsmanns sem unnið er með í launaskráningu. Þetta var mjög villandi og hefur nú verið lagað. Nú kemur áfram sami starfsmaður í launaskráningu og unnið var með áður.

Áramótastaða tvöföld

APPAIL-3918

Hjá þeim viðskiptavinum sem eru með fleiri en eitt fyrirtæki var áramótastaða á launaseðli að tvöfaldast þegar útborgun í fyrirtæki 2 var lokað. Þetta hefur verið lagað.

Orlof lagt í banka - auka króna

APPAIL-2136

Launaliðir 9201 Orlof lagt í banka og 9210 Orlof á laun áttu það til að hækka upphæð um eina krónu ef þannig stóð á afrúnnun heildarsummu launa. Þessu hefur nú verið breytt, þannig að aurar eru ekki skoðaðir, heldur tekin hrien samtala þeirra launa sem orlof er reiknað af.

Grunnlaunaspjald - heiti breytt á svæði

APPAIL-3965

Heitinu á svæðinu Launatafla nr. var breytt í Samningur nr.

Víddir í bókhaldslyklum koma auðar í PayBookRecord listum og greiningu

APPAIL-3974

Í útgáfu 3.8.5.2 hættu víddir að birtast í bókhaldslistanum Greina. Þær hafa nú komið í ljós og birtast á réttum stöðum.


Launakönnun sveitarfélaga

APPAIL-3790

Skýrslunni launakönnun sveitarfélaga hefur nú verið bætt við Kjarna .




  • No labels