Eloomi tenging - takmörkun á fyrirtæki
APPAIL-5676
Bætt hefur verið inn möguleika á að setja inn stillingu þar sem hægt er að takmarka flutning starfsmanna yfir í Eloomi við ákveðin fyrirtæki. Þetta á við í þeim tilvikum þar sem viðskiptavinir eru með fleiri en eitt fyrirtæki í Kjarna en ekki starfsmenn allra fyrirtækjanna eiga að stofnast í Eloomi.
Endilega sendið póst á service@origo.is ef þið viljið nýta ykkur þessa virkni.
Eloomi tenging - óvirkja notendur
Bætt hefur verið inn virkni þannig að notendur í Eloomi eru óvirkjaðir þegar viðkomandi starfsmaður er merktur Hættur í Kjarna.
Númer aðgangskorts
Svæði fyrir skráningu á númeri aðgangskorts hefur verið bætt við launamannaspjaldið. Þetta númer er m.a. hugsað fyrir mötuneytislausnina sem er einn af þeim kerfishlutum sem viðskiptavinir geta nýtt.
Kerfisvalmynd - tilfærsla á skipunum
Aðgerðirnar Stofna notanda og Eyða notanda sem voru undir flipanum Stillingar hafa verið færðar undir flipann Aðgerðir.
Aðgerðirnar Vefgildi og Samþykki sem voru undir flipanum Aðgerðir hafa verið færðar undir flipann Stillingar.
Flísavalmynd
Í tækjaslá flísavalmynda var tákn í laginu eins og þrjár flísar.
Þessu tákni hefur nú verið breytt, bæði skipun á bak við að og eins útliti þess. Skipun var .Index en er nú .List til samræmis við aðrar stillingar í Kjarna.
Þetta tákn er notað til að stilla flísar í valmyndinni, skipta um liti og letur og líka til að eyða flísum úr vistaðri valmynd.