Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 9 Next »

Flytja marga umsækjendur - Skráning á orlofsflokki

APPAIL-5381

Hægt var að velja viðkomandi orlofsflokk úr lista í í aðgerðinni Flytja marga umsækjendur en nú er líka hægt að slá inn númer orlofsflokks í þar til gert svæði. Þetta sama hefur verið útfært í aðgerðinni Flýtiráðning.

Flytja marga umsækjendur - Skattkortasvæði 

APPAIL-5690

Svæðið Skattkort út er nú birt í aðgerðinni Flytja marga umsækjendur og svæðið Skattkort inn hefur verið tekið út í staðinn. 

Flytja marga umsækjendur - banka- og lífeyrissjóðsupplýsingar

APPAIL-5711

Vistun banka- og lífeyrissjóðsupplýsinga í aðgerðinni Flytja marga umsækjendur hefur verið yfirfarin. 

Heildaryfirlit umsækjanda ekki að birta öll viðhengi umsækjanda nema að velja Fríska

APPAIL-5623

Ef umsækjandi átti fleiri en eina umsókn í Kjarna voru ekki öll viðhengi að birtast í flipanum Viðhengi undir heildaryfirliti umsækjanda nema valið var Fríska. Þetta hefur verið lagað.

Ef umsækjandi sótti um en kláraði ekki umsóknarferlið (stofnaði eingöngu aðgang en er ekki tengdur á umsókn) þá voru öll viðhengi umsækjanda að birtast í flipanum Viðhengi undir Heildaryfirlit umsækjanda. Þetta hefur verið lagað.

Spurningasniðmát - röðun spurninga breyttist í auglýsingu

APPAIL-5288APPAIL-5382

Það var að gerast þegar  spurningarsniðmát var valið inn í auglýsingu að röðun spurninga var að breytast. T.d. þegar búið var að stofna spurningasniðmátið og bætt við spurningu og hún dregin efst í sniðmátið og það vistað, svo þegar sniðmátið var valið í auglýsinguna var spurningin neðst í sniðmátinu. Þetta hefur nú verið lagað og spurningar birtast á auglýsingu á þeim stað sem þær voru vistaðar í sniðmátinu upphaflega.


Flokkun auglýsinga

APPAIL-5703

Bætt hefur verið við svæði þar sem hægt er að skrá flokkun á auglýsingu. Flokkunin er stofnuð undir Ráðningar > Flokkun auglýsinga. Þegar auglýsing er stofnuð er hægt að skrá þessa flokkun í svæðið Flokkun auglýsingar. Er þessi flokkun ætluð til flokkunar á auglýsingum á heimasíðu viðskiptavinarins og birtist hún í XML undir RCAdvertGroupingID.

Samhliða þessari breytingu voru gerðar breytingar á svæðum þegar auglýsing er stofnuð en svæðið  Lausar stöður var fært undir svæðið Staðfestingarbréf.


  • No labels