Flýtiráðning - Tab á milli svæða
Yfirfarið hefur verið hvernig tab hnappurinn ferðast á milli svæða í aðgerðinni Flýtiráðning svo röðin sé rökrétt.
Flýtiráðning - Skráning á orlofsflokki
Hægt var að velja viðkomandi orlofsflokk úr lista í í aðgerðinni Flýtiráðning en nú er líka hægt að slá inn númer orlofsflokks í þar til gert svæði. Þetta sama hefur verið útfært í aðgerðinni Flytja marga umsækjendur.
Flýtiráðning - Svæðið vinnutími
Í flýtiráðningunni voru svæðin Fjöldi vinnudaga á viku og Fjöldi vinnustunda á dag mv. fullt starf jafnt og 0. Í ferlinum "Stofna starfsmann" koma þessi svæði sjálfkrafa með 5 og 8.
Þessu hefur verið breytt í flýtiráðningunni að núna kemur svæðið "Fjöldi vinnudaga á viku" = 5 og "Fjöldi vinnustunda á dag mv. fullt starf" =8.
Flýtiráðning - Athugsemd ef starfsmaður þegar til í Kjarna
Athugasemd hefur verið bætt við aðgerðina Flýtiráðning ef starfsmaður með viðkomandi kennitölu er þegar til í Kjarna. Þetta er sambærileg athugasemd og kemur upp í ferlinu Stofna starfsmann. Hægt er að halda áfram með flýtiráðninguna þrátt fyrir þessa athugasemd, ef t.d. starfsmaðurinn er að færast til í starfi. Viðkomandi starfsmaður fær þá nýja færslu í spjaldið Tenging innan fyrirtækis og það sama gerist með önnur þau spjöld sem fyllt er út í upplýsingar fyrir í flýtiráðningunni.
Flýtiráðning - Skattkortasvæði
Svæðið Skattkort út er nú birt í aðgerðinni Flýtiráðning og svæðið Skattkort inn hefur verið tekið út í staðinn.
Starfslok starfsmanna
Ef starfsmaður er með skráða framtíðarfærslu í grunnlaunaspjaldi sem tekur gildi eftir skráðan síðasta útborgunardag kemur upp listi yfir þær fæslur. Ekki er hægt að flytja listann yfir í excel en það er hægt að ljóma upp línurnar og afrita með Ctrl+V og flytja þannig yfir í excel.
Ástæða starfsloka
Þegar ferilinn Starfslok starfsmanna er notaður og valin er "Ástæða starfsloka" kom "Óskilgreint" í spjaldið Tenging innan fyrirtækis en ekki sú ástæða sem var valin, t.d. Uppsögn. Þetta hefur nú verið lagað þannig að sú ástæða sem er valin birtist í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis.
Endurráða starfsmenn - banka- og lífeyrissjóðsupplýsingar
Vistun banka- og lífeyrissjóðsupplýsinga í aðgerðinni Endurráða starfsmenn hefur verið yfirfarin.
Númer aðgangskorts
Svæði fyrir skráningu á númeri aðgangskorts hefur verið bætt við launamannaspjaldið. Þetta númer er m.a. hugsað fyrir mötuneytislausnina sem er einn af þeim kerfishlutum sem viðskiptavinir geta nýtt.
Nafnasvæði í spjaldinu Starfsmaður
Í spjaldinu Starfsmaður hefur eingöngu verið svæði sem sýnir fullt nafn starfsmanns. Nú er möguleiki á að sýna líka nafnið uppskipt ef viðskiptavinir vilja það. Setja þarf þá inn stillinguna EmployeeMasterAdditionalNameFields = true. Við það birtast þessi viðbótarsvæði í starfsmannaspjaldinu og fyllt er út í þau út frá nafninu í upprunalega nafnasvæðinu.
Starfsmannatré - skipulagseining
Í starfsmannatrénu hefur textanum Launamannanr. verið skipt út fyrir nafn skipulagseiningarinnar sem starfsmaðurinn tilheyrir í viðkomandi starfi. Með þessu móti þarf ekki að fara inn spjaldið Tenging innan fyrirtækis til þess að sjá hvorri einingunni viðkomandi launamannanúmer tilheyrir heldur sést það strax í starfsmannatrénu.
Áminningar - póstur á yfirmann
Upp kom að áminningarvirknin sendi út póst á fyrrverandi yfirmann starfsmanns t.d. ef reynsluráðningu var að ljúka. Þetta hefur nú verið lagað og áminning sendist nú eingöngu á núverandi yfirmann.
Einnig kom upp ef starfsmaður var með tvö launamannanúmer þá var að sendast áminning á yfirmann í starfi nr. 1 þó starfsmaðurinn væri ekki lengur í því starfi. Það hefur einnig verið lagað og er bara send áminning á yfirmann núverandi starfs.
Áminningar - hættir starfsmenn
Áminningar voru að sendast út fyrir hætta starfsmenn. Því hefur nú verið breytt. Ef ekki á að senda út áminningu fyrir starfsmenn sem eru hættir þarf að setja inn stillinguna Reminder.Excluded.EmployeeStatuses í Stillingar og í Gildi eru talin upp númer þeirra ráðningarmerkinga sem á að undanskilja. Ef stillingin er ekki sett inn þá sendast áminningar fyrir hætta starfsmenn áfram.
Hafið samband við ráðgjafa okkar ef óskað er eftir aðstoð við að setja inn þessa stillingu, service@origo.is.
Spjaldið Tenging innan fyrirtækis - Starfsmaður í tímaskráningarkerfi
Í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis hefur verið gerð sú breyting að þegar starfsmaður er skráður Hættur, Á starfslokasamningi eða Á eftirlaunum þá fer hakið úr Starfsmaður í tímaskráningu sjálfkrafa.
Virknin er eins þegar aðgerðin Starfslok starfsmanna er framkvæmd.
Flýtiráðning - Tenging við tímaskráningarkerfi
Þeirri virkni hefur verið bætt við að þegar starfsmaður er stofnaður í gegnum Flýtiráðningu þá er núna kallað í tengingu við tímaskráningarkerfi sé hakað í Starfsmaður í tímaskráningu..
Þá er starfsmaðurinn stofnaður í tímaskráningarkerfi strax þegar hann er stofnaður í Kjarna á þennan hátt.