Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 8 Next »

Nýtt svæði á Undirsvæði

APPAIL-5844

Bætt hefur verið við nýju svæði í skjáinn fyrir Undirsvæði. Svæðið heitir Kóði.

Intellecta - breytingar á spjöldum og skýrslu

APPAIL-5795

Intellecta er að gera breytingu á kjarakönnun sinni þetta árið. Af þeim sökum hafa umfangsmiklar breytingar verið gerðar á Intellecta skýrslunni og flokkun Intellecta á stöðum, námsleiðum og gráðum.

Undirstaðsetning í Tenging innan fyrirtækis

APPAIL-5855

Ef undirstaðsetning var skráð á staðsetningu var hún ekki að birtast í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Þetta hefur verið lagað.

Umsjónarmenn í Tenging innan fyrirtækis 

APPAIL-5850

Ef starfsmannafulltrúi, launafulltrúi og tímastjóri er með starfsmannanúmer sem inniheldur fleiri en 4 tölustafi var hann ekki að birtast í spjaldinu í Tenging innan fyrirtækis. Þetta hefur verið lagað.

Heimilisfangi og símanúmeri bætt við á Staðsetningu

APPAIL-5845

Heimilisfangi og símanúmeri hefur verið bætt við staðsetningu undir Stofnskrár > Staðsetningar.

Starfslýsing af stöðu birtist á starfsmanni í Tenging innan fyrirtækis

APPAIL-5406

Ef búið er að tengja starfslýsingu við stöðu starfsmanns er hún nú aðgengileg í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Þegar smellt er á hnappinn Starfslýsing í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis þá opnast skjalið sem tengt er sem starfslýsing á viðkomandi stöðu.

Jafnlaunavottun - Persónubundnir þættir

APPAIL-5819

Útbúið hefur verið nýtt spjald til þess að halda utan um persónubundna þætti starfsmanna vegna jafnlaunavottunar. Þar sem ekki allir viðskiptavinir nota persónubundna þætti í tengslum við jafnlaunavottun þá þarf að setja inn stililngar til þess að birta þetta spjald á kerfi viðskiptavinar auk listans fyrir spjaldið og viðbótardálka í jafnlaunavottunarskýrslunni. Sjá nánar hér. Senda skal póst á service@origo.is ef óskað er eftir að kveikt sé á þessari virkni. 

  • No labels