Default gildi í spjöldum
Núna er hægt að setja inn default gildi í spjöld starfsmanna þegar verið er að stofna færslu. Ef óskað er eftir því að setja inn default gildi í eitthvað spjald þarf að senda beiðni á service@origo.is með upplýsingum um hvaða spjald á að setja default gildi og hvert gildið á að vera.
Intellecta - Starfssvið - villumelding löguð
Ef reynt er að skrá færslu með sama vísi og færsla sem var nú þegar til kemur upp villumelding þar sem ekki er hægt að skrá færslu með sama vísi. Textinn í þessari villumeldingu hefur verið lagaður og gerður skiljanlegur.
Viðbótarupplýsingar í grunnvefþjónustu fyrir ráðningar
Bætt hefur verið við upplýsingum um póstnúmer, aldur og kyn í grunnvefþjónustuna fyrir ráðningar.