Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 4 Current »

Tölvupóstur á yfirmann eða aðra við skráningu á námskeiðsfærslu á starfsmannavef

APPAIL-4264

Bætt hefur við virkni þannig að tölvupóstur sendist á næsta yfirmann starfsmanns og/eða aðra skilgreinda aðila þegar starfsmaður skráir sig á námskeið á starfsmannavef. Til þess að virkja þá virkni þarf að setja inn viðeigandi stillingar, sjá nánar hér. Einnig er hægt að senda póst á service@applicon.is ef óskað er eftir aðstoð við þessar stillingar. 

Melding við skráningu á námskeiðsfærslu á starfsmannavef

APPAIL-4265

Bætt hefur verið við stillingu þannig að hægt sé að kveikja á því að meldingin "Skráning hefur verið send starfsmannasviði til yfirferðar." komi upp þegar starfsmaður skráir á sig námskeiðsfærslu á starfsmannavef. Þetta er í tengslum við atriðið hér að ofan. 

Frammistöðumat - vefur geymi skráningu

APPAIL-4384

Því hefur verið bætt við starfsmannavefinn að ef notandi er að vinna í að fylla út í frammistöðumat og klárar það ekki áður en það kemur "timeout" á innskráninguna hans eða ef notandinn lokar vafranum án þess að hafa vistað það sem búið var að skrá þá geymi vafrinn í minni það sem hafði verið skráð. Þegar notandinn skráir sig aftur inn á vefinn þá eru þessar upplýsingar ekki tapaðar heldur birtast þegar hann fer aftur inn í útfyllingu frammistöðumatsins. Þessar niðurstöður geymast í minni vafrans í 8 klst. Ef notandinn opnar vafrann eftir að 8 klst. eru liðnar frá því að hann var að skrá inn í frammistöðumatið þá eru upplýsingarnar aftur á móti tapaðar. 

  • No labels