Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 8 Next »

Staðsetningar - nýtt svæði fyrir Sími landakóði – einnig til sem val í listanum

APPAIL-6292

Í Staðsetningar undir Stofnskrár var bætt við nýju svæði fyrir Sími landakóði í útgáfu 19.5.2. Þetta svæði er nú einnig til sem val inni í listanum.

Póstnúmeralistinn uppfærður

APPAIL-6367

Búið er að uppfæra póstnúmeralistann samkv. breytingum hjá Póstinum. Sjá hér.

Birta notendanafn í starfsmanna- og launamannatré

APPAIL-6350

Núna er hægt að birta notendnafn starfsmanns í starfsmanna- og launamannatrénu og er hægt að leita eftir því. Setja þarf inn stillingu til að birta notendnafn í starfsmanna- og launamannatrénu. Senda skal beiðni á service@origo.is ef óskað er eftir að fá inn þessa viðbót.

Kostnaðarstöð yfirskrifuð á stöðu birtist nú í listanum Tenging innan fyrirtækis

APPAIL-6502

Ef kostnaðarstöð var yfirskrifuð á stöðu, þ.e. með aðra kostnaðarstöð en þá sem skráð er á skipulagseininguna var yfirskrifaða kostnaðarstöðin ekki að birtast í listanum Tenging innan fyrirtækis heldur sú kostnaðarstöð sem skráð var á skipulagseininguna.
Þessu hefur verið breytt þannig að ef kostnaðarstöð er yfirskrifuð á stöðu þá er það yfirskrifaða kostnaðarstöðin sem er birt í listanum Tenging innan fyrirtækis.

Listinn Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður að skila villu

APPAIL-6374

Listinn Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður var að skila villu og ekki hægt að opna listann. Þetta hefur verið lagað.

Komu villuskilaboð þegar valið var að stofna nýja Flokkun

APPAIL-6435

Þegar valið var að stofna nýja flokkun undir Stofnskrár > Flokkun kom upp villa. Þrátt fyrir villuna var hægt að stofna flokkun. Þetta hefur verið lagað og villan fjarlægð.

  • No labels