Almennt 3.5.8
Tegundir bréfa í hliðarvalmynd
Lista yfir Tegundir bréfa hefur nú verið bætt í hliðarvalmyndina. Þar er hægt að stofna nýjar tegundir bréfa eftir þörfum.
Þjóðskráruppfærsluforrit uppfæri aðra þó einn lendi á villu
Upp geta komið dæmi þar sem starfsmenn eru í utangarðsskrá Þjóðskrár Íslands og fyrirtæki eru almennt ekki með aðgang að þessari utangarðsskrá. Þar sem þessar kennitölur eru ekki til í almennu þjóðskránni þá kom villa í uppfærsluforritinu um að þessar kennitölur finndust ekki í þjóðskrá og forritið hætti að keyra. Þessu hefur nú verið breytt þannig að forritið keyrir í gegnum alla starfsmenn þrátt fyrir að einhver lendi á villu.
Starfsmannavefþjónusta sem skilar öllum starfsmönnum, EmployeesAll
Nýrri starfsmannavefþjónustu, EmployeesAll, hefur verið bætt við Kjarna. Þessi nýja þjónusta skilar öllum starfsmönnum, óháð því hvort þeir eru í starfi eða ekki auk upplýsinga um Ráðningarmerkingu og Tegund ráðningar svo hægt sé að sía níðurstöðurnar eftir þessum upplýsingum.
Slóðin á þessa vefþjónustu er mismunandi á milli viðskiptavina. Starfsmenn Origo geta gefið nánari upplýsingar varðandi þjónustuna.
Eldri starfsmannavefþjónusta, Employees, skili ekki upplýsingum um starfsmenn á starfslokasamningi
Eldri starfsmannavefþjónustan, Employees, skilar ekki þeim starfsmönnum sem eru með Hættur skráð í svæðið Ráðningarmerking. Því hefur nú verið bætt við þjónustuna að hún skili ekki heldur þeim starfsmönnum sem skráðir eru með gildið Starfslokasamningur.
AD - Uppfærsla í sjálfvirkri keyrslu
AD uppfærsla getur nú keyrt í sjálfvirkri keyrslu.
AD - Varpanir per fyrirtæki
Nú er hægt að hafa mismunandi AD varpanir fyrir hvert fyrirtæki ef viðskiptavinur er með fleiri en eitt fyrirtæki.
AD - Gildi á nýja starfsmenn
Lagfært hefur verið að AD gildi skiluðu sér ekki á nýja starfsmenn.
AD – Starfsmenn sem ekki hafa hafið störf
AD tengingin leyfir nú flutning yfir í AD á starfsmönnum sem ekki hafa nú þegar hafið störf, þ.e. fyrsta færslan þeirra í Tenging innan fyrirtækis er dagsett fram í tímann.
Tenging við Sharepoint
Bætt hefur verið við tengingu þar sem Kjarni flytur gögn yfir í Sharepoint lista.
Starfsmenn Origo stilla, í samráði við viðskiptavin, hvaða upplýsingar eiga að flytjast á milli kerfanna.
Aðgangur yfirmanna
Aðgangur yfirmanna var yfirfarinn m.t.t. starfsmanna sem voru áður undir yfirmanni en hafa færst annað í skipuriti.
Aðgangur að umsækjendum
Búið er að bæta inn aðgangsstýringu þannig að hægt sé að gefa völdum notendum aðgang að öllum umsækjendum tiltekinna auglýsinga.
Vinnustund - Slökkt á meldingu ef ekki í notkun
Ef Vinnustundartenging var ekki í notkun kom upp, í hvert sinn sem starfsmaður var uppfærður í Kjarna, melding um villu í Vinnustundartengingu. Þetta hefur nú verið lagað þannig að ef ekki er kveikt á Vinnustundartengingu þá koma ekki upp neinar svona meldingar.