Ráðningar 3.5.8
Listinn auglýsingasvör er nú aðgengilegur úr stofnspjaldi auglýsingar
Þegar stofnspjald auglýsingar er opnað er búið að bæta við þessum hnapp í tækjastikuna. Þegar smellt er á hann opnast listinn auglýsingasvör sem inniheldur lista yfir alla umsækjendur um tiltekið starf og svör úr umsóknum þeirra.
Senda viðhengi umsækjenda í tölvupósti
Nú er hægt að senda viðhengi umsækjenda í tölvupósti á yfirmenn og aðra ráðningaraðila innan fyrirtækisins. Viðhengin er hægt að senda úr listunum Umsóknir og Auglýsingasvör. Þegar viðhengi hafa verið send út vistast færsla þess efnis í samskiptaspjald umsækjandans.
Flytja hóp umsækjenda yfir í starfsmannahluta Kjarna
Aðgerðinni Flytja umsækjendur hefur verið bætt við ráðningahlutann. Aðgerðin er aðgengileg fyrir neðan Auglýsingar í hliðarvalmyndinni undir Kjarni > Ráðningar. Með þessari aðgerð er hægt að flytja hóp umsækjenda yfir í starfsmannahlutann með öllum þeim upplýsingum sem þeir skráðu á sig í umsóknarferlinu auk þess sem hægt er að stofna viðeigandi launaupplýsingar á þá í einu skrefi. Sjá nánar í handbókinni: Flytja umsækjendur.
Hraðað á listanum Auglýsingasvör
Hraðað hefur verið á listanum Auglýsingasvör.
Aðgangur að umsækjendum
Bætt hefur verið inn aðgangsstýringu þannig að hægt er að gefa völdum notendum aðgang að öllum umsækjendum tiltekinna auglýsinga. Flipanum Aðgangur hefur verið bætt inn á auglýsingar og þar eru valdir þeir notendur sem eiga að fá aðgang að umsækjendum