Laun 3.5.6

Skattkort, gildistími og færsludagsetningar ( APPAIL-2214)

Skattkort er notað ef gildistími þess er innan launatímabils útborgunar. Dagsetningar fara eftir greiðsluformi starfsmanns og fylgja greiðsluformi útborgunar.

Grunnlaunaspjald finnst ekki á tímabili frá 31.12.9999 til 31.12.9999 (APPAIL-2201)

Þessa villu er nú búið að laga.

Reikna launa – villa v/gildistíma grunnlaunaspjalds (APPAIL-2200)

Ef grunnlaunaspjald var ekki í gildi til 31.12.9999 þá kom þessi villa, þetta hefur nú verið lagað.

Heildarlaun og frádráttur (APPAIL-2193)

Launaliður 9001 og 9002 voru að taka á sig stofnunarnúmer ef efsta launalínan í skráningu launa var með stofnunarnúmeri. Þetta hefur nú verið lagað.

Valskjár fyrir skilagreinar (APPAIL-2172)

Valskjár kemur upp þegar valdar eru möppurnar Lífeyrissjóður eða Stéttarfélög. Valskjárinn kemur með valdar allar lokaðar útborganir og í flipanum Færslur kemur sjálfvalinn bókunardagur sem skráður er í útborgun. Hægt er að eyða út þessu vali og velja sjálfur inn eina eða fleiri útborganir og/eða skipta um bókunardag. Möppurnar Rafræn skil og Innheimtuaðilar bjóða ekki upp á valskjá og skila aðeins valinni útborgun. 

Skilagreinar stéttarfélaga - hluti gjalda á aðra stofnun/innheimtuaðila (APPAIL-2170)

Nú er hægt að láta hluta gjalda stéttarfélags skila sér á aðra stofnun.

Skilagreinar, bæta við gjaldategundum stéttarfélaga (APPAIL-2164)

Gjaldategundir stéttarfélaga eru skilgreindar með fyrirfram ákveðnum bókstöfum fyrir rafræn skil. Þessi stilling er sett á þá launaliði sem tilheyra stéttarfélögum.

Bókhaldsforrit fyrir ÁTVR (APPAIL-2159)

Breyting á bókunarforriti fyrir ÁTVR, en þeir bóka í Navision. Notandi skráir uppsetning á bókhaldslykli í Kjarna sem hér segir: Lykill;<kostnaðarstöð>;<kennitala innheimtuaðila>;Merking;Frjáls texti dæmi: 2110;<kostnaðarstöð nr.>;;F;; ;;;<lífknt>;L;Líf.sj.  1890;<kostnaðarstöð nr.>;<lífknt>;F;LTGJ

Stofnunarnúmer staðgreiðslu og tryggingagjalds (APPAIL_2153)

Reiknvélin setur stofnunarnúmer 1 á færslur vegna persónuafsláttar, tryggingagjalds og staðgreiðslu. Sofnunarnúmer 1 er því frátekið fyrir reiknivélina.

Launabókun – viðtakandi greiðslu (APPAIL-2120)

Bætt var við auka kennitölusvæði ef viðtakandi greiðslu er annar en stofnunin sjálf

Bókhaldsgreining – bæta við svæði (APPAIL-2111)

Í bókhaldsgreiningu er Vídd 0 fyrsta svæðið í samsetníngu bókhaldslykils.Vídd 0 var bætt inn í "Velja dálka/svið" í listum fyrir bókhaldsskráningu.

Kjararannsókn – vantar launalið í samtölulista (APPAIL-2103)

Allir launaliðir sem merktir eru Laun og Mótframlög koma fram í lista aftast í textaskrá, óháð því hvort þeir séu merktir Kjararannsókn eða ekki.

Skilagreinar, gildistími spjalda (APPAIL-2010)

Þegar skilagreinar eru keyrðar þá er skoðaður útreikningur í útborgun en ekki spjaldi starfsmanns. Spjald starfsmannsins getur verið lokað en upplýsingarnar úr spjaldinu skilar sér í skilagrein.

Launaskráning – birta upphæð með álagi (APPAIL-1983)

Uppsetningu launaseðils þarf að stilla þannig að í Taxta sé valið Upphæð * Álag til að upphæð birtist með álagi á launaseðli.

Upphæð birtist ekki í grunnlaunaspjaldi starfsmanns (APPAIL-1913)

Skrá þarf stillinguna Xap.CrudCaption inn í XAP > Gildi. Í reitinn Gildi er skráð númer aðal launaliðar mánaðarlauna