Skjalaskápur 3.5
„Preview" á skjölum
Bætt var inn „preview" möguleika fyrir skjöl. Hægt er að kveikja á þessum möguleika þannig að ekki þurfi að opna hvert og eitt skjal til að skoða það.
„Import" á skjölum í Kjarna
Bætt var inn aðgerð þannig að hægt sé að „import-a" skjölum í Kjarna. Fylla þarf út í ákveðið innlestrarskjal þar sem vísað er í þau skjöl sem vista á inn í Kjarna.