Stofna stöðu

Þegar nýr starfsmaður er stofnaður í Kjarna þarf að tryggja að staðan sem starfsmaður á að gegna sé til í kerfinu og það starf sem staðan tilheyrir (ef störf eru notuð).

Allir starfsmenn í Kjarna eru settir í ákveðnar stöður sem segir til um starfsheiti þeirra. Hver staða tilheyrir ákveðinni skipulagseiningu. Í sumum tilvikum eru aðeins einn starfsmaður á stöðu (dæmi: Framkvæmdastjóri fjármálasviðs) en í öðrum tilvikum geta verið margir starfsmenn á stöðu (dæmi: innkaupafulltrúi á fjármálasviðið, ef það eru fleiri en einn). 

Stöður eru stofnaðar og þeim viðhaldið undir stofnskrár, eins og öðrum grunngögnum í kerfinu. 


ATH. að ef röng skipulagseining hefur verið skráð á stöðu þá er hægt að gera breytingu beint á stöðunni. En ef að skipulagsbreytingar eru í gangi og flytja þarf stöður á milli skipulagseininga þá gæti verið betra að stofna nýjar stöður á réttum skipulagseiningum og óvirkja þær sem ekki á lengur að nota. Ástæðan fyrir því er sú að ef skipt er um skipulagseiningu beint á söðu þá er ekki hægt að halda utan um breytingasöguna í Kjarna.

Upplýsingar um starfaflokkun Hagstofunar erfast frá því starfi sem valið er inn á stöðuna, ef störf eru notuð. Starfaflokkun er einnig hægt að skrá beint á stöður, ef störf eru ekki notuð, auk þess sem yfirskrifa má á stöðu þá starfaflokkun sem erfist frá því starfi sem tengt er á stöðu. 

Þegar ný staða er stofnuð er farið í Stofnskrár > Stöður og þar smellt á græna plúsinn. Byrjað er á því að velja inn rétta skipulagseiningu með því að smella á punktana þrjá og nafn stöðu svo slegið inn. Kerfið úthlutar númeri stöðunnar sjálfkrafa þegar smellt er á Vista og loka.


Stofngögn fyrir kjarakannanir og jafnlaunavottun eru skráð á stöðurnar. Sjá nánar hér

Einnig er hægt að stofna stöðu beint úr spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Þetta getur verið hentugt þegar verið er að ráða starfsmann í stöðu sem ekki er þegar til í fyrirtækinu. Þegar smellt er á velja stöðu í spjaldinu birtist listi yfir allar stöður í fyrirtækinu. Úr þeim lista er hægt að stofna nýja stöðu . Til að fá stöðuna til að birtast í listanum þegar hún hefur verið stofnuð þarf að smella á fríska hnappinn .  

Tengja starfslýsingu á stöðu

Hægt er að tengja starfslýsingar á stöður. Smellt er á ... hnappinn til þess að finna skjalið sem tengja á við stöðuna, stækkunarglerið til þess að skoða starfslýsinguna sem tengd hefur verið við stöðuna og x hnappinn til þess að eyða skjalinu út af stöðunni. 


 

Þegar starfslýsing hefur verið tengd á stöðu er hak í dálkinum Starfslýsing á viðkomandi stöðu í listanum yfir stöður. Þar er því einfalt að sía á allar stöður sem vantar að tengja starfslýsingu á.