Loka starfsmanni í Kjarna

Þegar starfsmaður lætur af störfum hjá fyrirtæki er að ýmsu að hyggja í kerfinu bæði að því sem snýr að uppgjöri launa og öðru.
Þegar starfsmaður lætur af störfum þarf að setja endadagsetningu á færslur í eftirfarandi spjöldum.

Tenging innan fyrirtækis

Best er að afrita gildandi færslu og setja inn ný gildi í afrituðu færsluna. Breyta þarf ráðningarmerkingu, tegund ráðningar heldur sér yfirleitt og síðan þarf að gefa ástæður starfsloka. Það er einungis sett inn fyrir skýrslugjöf. 


Í Gildir frá á að skrá daginn eftir síðasta starfsdag viðkomandi starfsmanns. Þegar ýtt er á Vista og loka breytist lokadagsetning á færslunni á undan sjálfkrafa í síðasta starfsdag. 


Endadagsetningin á færslunni sem merkt er Hættur á að vera 31.12.9999. 

Þegar ýtt er á Vista og loka kemur kerfið upp með eftirfarandi athugasemd ef að starfsmaður er með laun í lokuðum útborgunum. 
Grunnlaun

Setja þarf endadagsetningu á gildandi færslu í Grunnlaunaspjaldinu. Endadagsetningin á að vera daginn eftir síðustu útborgun starfsmanns.