Laun 3.9.3

Stækka valskjá fyrir aðgerðina "Hækka fasta launaliði"

APPAIL-4727

Valskjárinn var stækkaður þannig að hann sést allur þegar farið er í aðgerðina að hækka fasta launaliði.

Listinn Launaliðir - rétt röðun númera

APPAIL-4764

Launaliðir raðast nú í númeraröð, þar sem gerður er munur á 10 og 100 út frá númeri þess en ekki texta.

Valskjár fyrir Greina og Lista í launamiðum

APPAIL-4725

Valskjár þar sem hægt er að velja ár, fyrirtæki eða starfsmann hefur verið tengur á listana Greina og Lista í launamiðum

Kjararannsókn - upplýsingar aðgengilegar með launaupplýsingum

APPAIL-3975

Nú er hægt að sækja upplýsingar um númer kjararannsóknar inn í eftirfarandi launalista:

Grunnlaun úr hliðarvali > Kjarni > Mannauður > Grunnlaun
Fyrirtækjalisti = PayRecord.Pivot
Dálkalisti = PayListColumnCube.Pivot

Þær upplýsingar sem hægt er að sækja í táknið "Velja svið" eru eftirfarandi

Starfsflokkun ISTARF95_NR og ISTARF95_NAME
Atvinnugreinaflokkun ISAT95_NR og ISAT95_NAME
Staða (kjarar.) STADA_NR og STADA_NAME
Sveitarfélag SVEIT_NR og SVEIT_NAME

Fastir liðir sóttir úr launahring

APPAIL-4431

Nú er hægt að leita eftir samningi og launalið, ennig var textanum Gr.form launaliðar breytt í Tímabil launaliðar.

Samningur aðgengilegur úr grunnlaunaspjaldi

APPAIL-3678

Með því að halda niðri control takka og smella á þrjá punkta í svæðinu fyrir Samning nr. er nú hægt að komast í samning og launatöflu úr grunnlaunaspjaldi.

Hámarksupphæð iðgjalda í stéttarfélag

APPAIL-3359

Nú er hægt að skrá hámark iðgjalda í stéttarfélag.  Krónutala er skráð í Hámark í flipanum Launaútreikningur í stofnupplýsingum stéttarfélaga.

Launatöflur - stofna nýjan samning

APPAIL-3769

Plús hnapp var bætt við til að stofna nýjan samning.  Farið er í Launatöflur úr hliðarvalmynd undir Laun, þar er hægt að smella á plúsinn ef stofna á nýjan samning.

Stéttarfélag og Lífeyrissjóður sett inn sem breyta í listum

APPAIL-4757

Stéttarfélagi og Lífeyrissjóð hefur nú verið bætt inn sem vali í "Velja svið" í Fyrirtækjalista og Dálkalista.  Þegar þessi svið eru valin er hægt að sjá allar launafærslur launamanna eftir stéttarfélagi eða lífeyrissjóð

Afrita launalið

APPAIL-4557

Þegar launaliður er afritaður þá afritasta nú einnig reiknar fyrir afreiknaðar færslur, launaliðahópur og reitur á launamiða.

Afritun stofnupplýsinga stéttarfélaga og lífeyrissjóða

APPAIL-4828

Þegar stofnupplýsingar stéttarfélag og lífeyrissjóða eru afritaðar afritast nú einnig reiknitegundir fyrir launaútreikning. Setja þarf inn rétt númer innheimtuaðila þegar búið er að afrita stofnun.

Vallistar úr ávinnslum og áætlun

APPAIL-4810

APPAIL-4832

Nú er hægt að taka út Vallista úr ávinnsluskrá og áætlunarskrá með sama niðurbroti og úr launaskrá.  sjá handbók @Launalistar 1