Laun 3.8

Samþykktaferli launa - aðgangsstýringar

APPAIL-2158

Aðgangsstýringar í Kjarna voru virkjaðar í tengslum við samþykktaferli launa. Yfirmenn sjá þ.a.l. nú bara undirmenn sína í samþykktarferlinu. 

Ekki hægt að eyða færslum í Grunnlaunaspjaldi / Tenging innan fyrirtækis / 

APPAIL-2402

Ef að starfsmaður er með launafærslur á sér í opinni eða lokaðri útborgun er ekki hægt að eyða færslum úr ofangreindum spjöldum sem tengjast færslum í launaskráningu. Kerfið kemur með meldingu um að viðkomandi launamaður sé með færslur á sér í útborgun sem þarf fyrst að leiðrétta áður en hægt er að eyða færslum úr spjöldunum. 

Kostnaðarstöð sett á stöðu

APPAIL-2569

Hægt er að setja kostnaðarstöð á hverja stöðu sem yfirskrifar þá kostnaðarstöðina sem er á skipulagseiningunni. Kerfið var þannig að kostnaðarstöð starfsmanns fór eftir þeirri kostnaðarstöð sem skráð var á skipulagseiningu viðkomandi starfsmanns. Nú er hægt að yfirskrifa hana með því að setja kostnaðarstöð á stöðuna sem starfsmaður gegnir. Þetta getur t.d. verið gagnlegt þegar laun stjórnenda eða annarra eiga að bókast á aðra kostnaðarstöð en annarra í viðkomandi skipulagseiningu. 

75% reglan vegna opinberra gjalda

APPAIL-2722

Reglan var ekki að virka rétt, það hefur nú verið lagað. Reglan er sú að ekki má draga af launum starfsmanns hærra en 75% af heildarlaunum mínus meðlag, iðgjald í almennan lifeyrissjóð og greidd staðgreiðsla.

50% regla vegna meðlags frádráttar

APPAIL-2741

Regla fyrir frádrátt á meðlagi var ekki til staðar í Kjarna. Reglan er sú að ekki má draga af launum meira en 50% af heildarlaunum starfsmanns. Meðlag er í forgangi fyrir opinberum gjöldum.
Til þess að það myndist viðvörun ef meðlagið fer yfir 50% af heildarlaunum þá þarf að stofna nýja reiknireglu í kerfinu nr. 9611 með nafnið t.d "Hámark meðlag 50%" eða "Hámark innheimtu 50%" 
Á reikniregluna þarf að setja reikni ( Pay Calc ID ) = 600 og launalið ( Pay Wage ID ) = 9998 ef þetta á að vera viðvörun.

Innlestur úr tímaskráningarkerfi

APPAIL-2360

Þegar smellt er á aðgerðina Innlestur úr tímaskráningarkerfi úr hliðarvalmynd launa kemur kerfið nú með valda útborgun í innlestrarskjáinn sem opnast. 

 

Póstsendingar úr samþykktaferli launa

APPAIL-1894

Þegar laun eru send til samþykktar fer tölvupóstur á þá sem eiga að samþykkja launin með skilaboðum um að þeir eigi að fara inn í samþykktarferlið. Skilaboðin eru stöðluð og fara sömu skilaboð á alla. Nú er hægt að bæta við skilaboðum sem eiga bara að fara á einstaka samþykkjendur. 

 

Bunkainnlestur launafærslna notar ekki innlesna upphæð

APPAIL-2754

Nú er hægt að lesa inn upphæð í bunkainnlestri sem yfirskrifar að sækja taxta í launatöflu.

Gjöld Aðgerð - núllstilla gjöld

APPAIL-2286

Komin aðgerð í hliðarvalmynd þar sem hægt er að eyða/breyta gjöldum í spjaldinu Gjaldheimtugjöld hjá starfsmönnum.

Bókhaldsskrá - Fríhöfnin

APPAIL-2818

Bókhaldsskrá fyrir Fríhöfnina var löguð þannig að bókhaldslykill kemur nú í rétt svæði.