Ráðningar 3.8.6

Aðgerðir til að eyða umsóknum og umsækjendum eftir ákveðinn fjölda mánaða

APPAIL-3197 & APPAIL-3893

Komnar eru aðgerðir í kerfið sem eyða umsóknum og umsækjendum eftir ákveðinn fjölda mánaða. Þessi aðgerð hentar sérstaklega þeim sem vilja eingöngu geyma gögn umsækjenda í ákveðinn langan tíma, t.d. 6 mánuði frá því að gögn voru send inn. Nánari upplýsingar má finna í notendahandbók. 

Tölfræði auglýsinga - ný skýrsla

APPAIL-3649

Nýrri skýrslu sem inniheldur tölfræði allra auglýsinga í kerfinu hefur verið bætt við  undir Kjarni > Ráðningar. Skýrslan inniheldur helstu tölfræði auglýsinga í kerfinu eins og hlutfall karla/kvenna sem sótt hafa um, fjölda umsókna eftir póstnúmeri, tölfræði menntunar ásamt fleiru. 

Gefa notendum aðgang að völdum auglýsingum

APPAIL-2972

Þegar verið var að gefa notendum aðgang að auglýsingu var ekki hægt að velja marga í einu og vista, kerfið vistaði alltaf bara þann síðasta sem var valinn inn. Þetta hefur nú verið lagfært svo nú er hægt að velja marga notendur og kerfið vistar alla þegar glugganum er lokað. 

Viðhalda kyni og umsækjendaröðun í listanum Umsækjendur

APPAIL-3821

Núna er hægt að viðhalda kyni og umsækjendaröðun beint í listanum Umsækjendur með því að velja select hnappinn og fara í breytingarham.

Breyting á tölvupóstvirkni þegar umsækjandi er ráðinn úr ráðningarkerfi

APPAIL-3837

Þegar umsækjandi um starf er merktur sem ráðinn í ráðningarhlutanum sendist tölvupóstur á fyrirfram skilgreinda aðila. Bréfið var áður með stöðluðum texta en hún hefur því verið breytt og notendur geta sjálfir hannað bréfið undir Stofnskrár > Bréf. Sjá nánar hér. 

Stofna umsókn í gegnum Heildaryfirlit umsækjanda

APPAIL-3806

Þegar umsókn var stofnuð handvirkt í gegnum heildaryfirlit umsækjanda þá komu ekki allar upplýsingar um umsækjandann ef viðkomandi átti til umsókn fyrir. Þetta hefur verið lagað og núna koma upplýsingar um námsferil og starfsferil ef umsækjandinn hefur fyllt út þessar upplýsingar á umsóknarvefnum. Viðhengin, ef umsækjandi á til viðhengi sem tengjast umsækjandanum, tengjast umsókinni þegar hún er vistuð og birtast því ekki þegar umsóknin er stofnuð.

Stofna umsókn í gegnum umsóknarlista

APPAIL-3804

Hægt er að stofna umsókn í gegnum listann Umsóknir. Umsækjandi er valinn, auglýsing og staða umsóknar. Þegar færslan er svo vistuð þá sækir kerfið upplýsingar um námsferil, starfsferil og skjöl sem tengd eru umsækjandanum.

Tengja skjal á umsækjanda

APPAIL-3953

Ekki var hægt að tengja skjal á umsækjanda en það hefur verið lagað. Passa verður að ef annar eigandi skjals en umsækjandi er valinn, t.d. umsókn, að þá verður að velja númer eiganda skjals (fyrir eiganda skjals = umsókn er það auglýsingin sem viðkomandi umsækjandi hefur sótt um). 

Umsækjandaröðun bætt í listann Umsóknir

APPAIL-3936

Umsækjandaröðun hefur nú verið bætt við sem vali í listann Umsóknir.

Fleiri en eitt gildi valið í valskjá í listanum Umsóknir

APPAIL-3874

Ef fleiri en eitt gildi var valið í valskjáinn í listanum Umsóknir var ekki að birtast rétt heiti í valskjánum á þeim gildum sem valin voru. Þetta hefur verið lagað.