Ráðningar 19.4.1

Flokkun auglýsingar bætt við í lista

APPAIL-6000

Flokkun auglýsingar og Flokkun auglýsingar nr. var bætt inn í listana Auglýsingar, Umsókn og Auglýsingasvör svo nú er hægt að draga þessi svæði inn í þessa lista.

Auglýsingar - dagsetningar gildistíma

APPAIL-4947

Ef dagsetningar í gildistíma á auglýsingu voru óvart skráðar þannig að Til dagsetning var á undan Frá dagsetningu kom upp villa.
Ef þetta gerist núna kemur athugasemd um að dagsetning frá má ekki vera á eftir dagsetningu til og ekki hægt að vista auglýsingu nema dagsetningar séu lagaðar.

Senda viðhengi sendir allar yfirlitssíður fyrir umsókn

APPAIL-5487

Ef umsækjandi hefur uppfært umóknina sína fyrir ákveðið starf uppfærist yfirlitssíða umsóknar í Kjarna. Aftur á móti þegar yfirlitssíðan var send í tölvupósti sendust allar yfirlitssíðurnar. Þetta hefur verið lagað og núna sendist einungis nýjasta yfirlitssíðan.

Viðhengi send/prentuð úr ráðningarhluta birti bara þær viðhengjategundir sem tengjast ráðningum

APPAIL-6023

Þegar verið var að senda viðhengi úr ráðningarhlutanum birtist yfirlit yfir allar viðhengjategundir sem til eru í Kjarna. Þetta hefur verið lagað núna birtist einungis þær viðhengjategundir sem hafa eiganda skjals Umsækjandi eða Umsókn. Ef ekkert val birtist, eða vantar inn viðhengjategundir, þegar verið er að senda viðhengi í tölvupósti vantar að merkja eiganda skjals fyrir þær viðhengjategundir sem tengjast ráðningarhlutanum. Er það gert undir Stofnskrár > Skjalaskápur - Tegundir skjala. Ef þið óskið eftir aðstoð við þessar breytingar getiði sent beiðni á service@origo.is.

Ólögleg tákn í lykilorði á umsóknar vef tekið út

APPAIL-6066

Ekki var hægt að nota &, % og + í lykilorði þegar umsækjandi stofnaði sig sem notanda á umsóknarvefnum. Þetta hefur verið tekið út og eru núna öll tákn leyfileg en ekki er þörf á því að hafa tákn í lykilorðinu.

Villuboð færð neðst á skjáinn

APPAIL-6067

Ef umsækjandi reyndi að stofna aðgang með t.d. sama netfangi og annar umsækjandi var með komu villuboðin þess efnis neðst á skjáinn. Villuboðin hafa verið færð neðst á skjáinn.

Umsækjandi endursetur lykilorðið - flyst yfir á umsóknarvefinn með lista yfir öll laus störf

APPAIL-6065

Ef umsækjandi endursetti lykilorðið sitt þá gerðist ekkert eftir að lykilorðið var endursett. Núna flyst hann yfir á síðuna með yfirliti yfir öll laus störf.

Heildaryfirlit umsækjanda - nýtt útlit

APPAIL-5715

Breytt hefur verið um útlit og virkni í viðhengjaflipanum í Heildaryfirlit umsækjanda. Meiri upplýsingar birtast í flipanum, t.d. númer umsækjanda, númer umsóknar, tegund skjals og hvaða skráartegund af skjali er um að ræða. Til að bæta við skjali á umsækjanda er valið hnappinn Stofna í tækjastikunni og stofnast þá ný lína. Til að hengja skjalið við er farið í dálkinn Sækja skjal í þessari nýju línu og valið […] til að velja viðeigandi skjal. Viðhengið er sjálfkrafa hengt á eiganda skjals sem Umsækjandi en ef skjalið á bara að vera tengt á umsókn (ákveðna auglýsnigu) er eiganda skjals breytt í Umsókn og kemur þá upp listi yfir þær umsóknir sem viðkomandi umsækjandi á í kerfinu og er rétt umsókn valin. Að lokum er tegund skjals valið úr fellilista og lýsing skráð ef við á. Aðgerðirnar að Skoða skjal og Vista hafa verið færðar úr tækjastiku. Til að skoða skjal er stækkunarglerið valið í dálknum Skoða skjal. Ef nýtt skjal hefur verið hengt á umsækjanda er valið hnappinn Vista og loka.

Í þessu útlit birtast bara þau skjöl sem hafa eiganda skjals Umsækjandi eða Umsókn. Athuga þarf hvort viðeigandi skjalatýpur séu ekki tengdar réttum eiganda skjals í Kjarni > Stofnskrár. Ef óskað er eftir aðstoð við lagfæringu skal senda beiðni á service@origo.is