Jafnlaunavottun
Dálkalisti
Setja þarf upp dálkalista fyrir jafnlaunavottunarskýrsluna. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við uppsetningu dálkalistans ef sendur er tölvupóstur á service@origo.is.
Krafa um þrjá dálka, 100% laun, Bílastyrkur, Umbun.
Ráðgjafar Origo stofna dálkalistann og stilla gildin í Xap. Oftast skrá notendur inn þá launaliði sem við á, en ráðgjafi getur að sjálfsögðu gert það út frá upplýsingum viðskiptavinar.
Stillingar fyrir jafnlaunavottunarskýrslu
Eftirfarandi stillingar þarf að setja inn í XAP > Gildi tengt jafnlaunavottunarskýrslunni. Ef óskað er eftir aðstoð við þessar stillingarnar frá ráðgjöfum Origo skal senda póst á service@origo.is.
Heiti gildis | Kódi(valkvæmt) | Gildi |
---|---|---|
PayEqualityCertification | Kjarakannanir | Ef sett sem "false" þá er valmöguleikinn í hliðarvalmynd óvirkjaður og falinn |
EqualityCertification.PayListID | Kjarakannanir | Vísir þess dálkalista sem nota á sjálfgefið í valskjá |
EqualityCertification.OrgCompanyID | Kjarakannanir | Vísir þess fyrirtækis sem nota á sjálfgefið í valskjá |