Næsti yfirmaður í starfsmannaleit
Í útgáfu 18.5.1 kom inn nýjung þar sem hægt var að leita eftir næsta yfirmanni í starfsmannaleit með því að setja inn 'manager: (nafn yfirmanns)'. Þessi leit virtist ekki vera að virka nema kveikt væri á vefgildi fyrir Employee.Api.Show.EmployeesSearch.Qualifications en það hefur verið lagað.
Viðhald heimasíma á starfsmannavef
Bætt hefur verið við virkni þar sem starfsmaður getur núna breytt heimasíma á starfsmannavefnum. Kveikt þarf að vera á stillingu Employee.Web.Edit.EmployeeMaster.PhoneNumberHome í vefgildi.
Skráning á skattkorti í Internet Explorer og Edge
Þegar skattkort eða skattkort maka var skráð í Internet Explorer eða Edge hékk vinnsluhjól endalaust. Þetta hefur verið lagað.
Starfsaldur til viðurkenninga er núna Starfsaldur í fyrirtæki
Búið er að breyta heitinu Starfsaldur til viðurkenninga í Starfsaldur í fyrirtæki.
Skráning á námskeið ef námskeiðið fullt
Starfsmaður gat skráð sig á námskeið þótt það væri fullt á námskeiðið. Þetta hefur verið lagað.
Breytt upphafssíða fyrir starfsmannavef
Umfangsmiklar breytingar hafa verið gerðar á upphafssíðu starfsmannavefsins. Nú er hægt að birta þar grunnupplýsingar starfsmanns auk upplýsinga sem eiga við á þeim tímapunkti sem starfsmaður skráir sig inn á vefinn, t.d. orlofsstöðu, námskeið og frammistöðumat framundan, námskeiðsmat sem eftir á að svara og afmælisbörn dagsins. Það er stillingaratriði hvaða flísar birtast á upphafssíðunni, sjá nánar hér.