Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 22 Next »

Launasamþykktarferli

APPAIL-2865, 2932, 2934 & 2935 APPAIL-2866, APPAIL-2933

Launasamþykktarferlið var finpússað með því að bæta við svæðum í samþykktarskýrsluna sjálfa og gera aðgang að samanburði launa milli mánaða aðgengilegri fyrir stjórnendur. Leiðbeiningar um launasamþykktina má finna hér. 

Afritun á grunnlaunaspjaldi - Aukaflokkar og símenntunarálag

APPAIL-2963

Þegar grunnlaunaspjald var afritað þá afrituðust ekki með upplýsingar í svæðunum aukaflokkar og símenntunarálag. Þetta hefur nú verið lagað. 

Áramótastaða

APPAIL-2906

Í stað þess að bæta núverandi útborgun við áramótastöðu þegar útborgun er lokað, þá er áramótastaðan endurunnin fyrir allt yfirstandandi ár og birt í einni línu pr. launalið eða ein lína fyrir hvern söfnunarflokk þar sem það á við.

Aðgerðir í hliðarvalmynd Kjarna

APPAIL-2382

Sett hefur verið inn í hliðarval Kjarna Laun og Aðgerðir, Send Vefskil. Þar er hægt að skoða vefskil sem hafa verið send, staðfesting hvert og hvenær þær fóru og með hvaða upplýsingum.

Valskjáir

APPAIL-1339

 Í Valskjá fyrir Fyrirtækjalista hefur verið bætt við svæði fyrir bókunarár. Ef sett er inn bókunarár birtist bókunardagur frá 1.1-31.12 þess árs sem var valið. Þetta er flýtileið til að taka út skýrslu fyrir allt árið. 

Reikna laun án fæðingardags

APPAIL-2996

Nú reiknast laun án þess að fæðingardagur sé skráður, það stöðvar ekki launaútreikning lengur þó svo að fæðingardagur sé ekki skráður.

Launaseðill ef aðeins færslur sem ekki á að birta á launaseðli

APPAIL-2284

Ef engar launa- frádráttar- eða safnfærslur eru skráðar á launamann sem eiga að birtast á launaseðli, þá vistast launseðillinn ekki með í XML í banka og birtist því ekki í heimabanka launamanns.

Skilagreinar gjaldheimtna sendar með tölvupósti

APPAIL-2781

Þessi aðgerð hefur verið yfirfarin og uppfærð.

Vefskil

APPAIL-1820

Bætt hefur verið við svæðinu "Móttekið" lengst til hægri í staðfestingarglugga vefskila.
Þar skráist sú upphæð sem innheimtuaðili staðfestir móttöku á.

Leiðrétta laun afturvirkt

APPAIL-2013

Bætt var inn vali þar sem hægt er að velja um hvort leiðréttingarfærslur eigi að koma á þá launamenn sem eru ekki í þeirri útborgun sem leiðréttingin verður sett í.

APPAIL-1955

Aðgerðinni "Leiðrétta laun" hefur nú verið bætt inn í aðgerðahjól í skráningarmynd launa. Valinn starfsmaður kemur sjálfvalinn í valskjá.

Villumelding "Skrá" í launahring.

APPAIL-1938

Fyrir kemur að enginn starfsmaður uppfyllir kröfur um að birtast í útborgun launa þegar smellt er á Skrá í launahring. Ástæðurnar geta verið að um fyrstu útborgun launa sé að ræða og ekki búið að lesa gögn inn á starfsmenn.
Tengin launamanns við útborgun eru spjöldin Tenging innan fyrirtækis, Grunnlaun og Vinnutími. Þau þurfa að vera til fyrir starfsmann í réttu fyrirtæki m.v. valda útborgun.
Önnur ástæða getur verið að valinn hafi verið útborgunarhópur í útborgun sem enginn starfsmaður hafi fengið úthlutað.

Ef þetta kemur fyrir og smellt er á hnappinn Skrá í launahring, þá kemur eftirfarandi villumelding í hægra neðra hornið á Kjarna:
"Vinsamlega athugið skráningar starfsmanna. Starfsmenn þurfa að hafa skráðar upplýsingar í spjöldin Tenging innan fyrirtækis, Grunnlaun og Vinnutími."

Trégerð í launaskráningu

APPAIL-2088

Bætt hefur verið við vali í þá mynd sem opnast þegar hægrismellt er á starfsmenn í trégerð í launaskráningu. Fyrir var "Flokka" en nú hefur verið bætt við "Víkka" og "Fella"

Víkka opnar á sýn á öll spjöld allra starfsmanna.

Fella dregur allt saman þannig að aðeins nöfn starfsmanna séu sýnileg.

Bankareikningar nýskráning - athugasemd kemur ef það vantar að skrá inn í svæði

APPAIL-1336

Þegar nýtt bankaspjald er stofnað kemur athugasemd ef Tegund reiknings, bankanúmer, höfuðbók eða reikningsnúmer vantar.

Launatöflur

Nýju launaþrepin, þ.e. núllta þrep og þrep 13 til 25 eru nú formöttuð með punkti fyrir hvert þúsund, eins og eldri þrepin.


  • No labels