Laun 3.8.8 & 3.8.9
Aldurshækkanir - eingöngu skoðaðir samningar með hækkunarreglur
Nú skoðar Kjarni eingöngu þá samninga sem eru með skilgreindar hækkunarreglur þegar aðgerðin aldurshækkanir er keyrð.
Upplýsingar sóttar í grunnlaunaspjald - Fastir liðir
Upplýsingar um - Samning nr - Launaflokk - Þrep - Greiðsluform - Greiðslutíðni er nú sótt af grunnlaunaspjaldi þegar nýr launaliður er stofnaður í föstum liðum.
Spjald fyrir fasta liði - breytingar á útliti.
Í spjaldið Fastir launaliðir koma nú upplýsingar af grunnlaunaspjaldi um Samning, Launaflokk, Þrep, Greiðsluform og greiðslutíðni. Hægt er að yfirskrifa öll þessi gildi en við það að yfirskrifa verður textinn blár. Til þess að sækja erfða gildið aftur er hægt að smella á exið aftast í línunni. Aðeins á að handskrá í þessi svæði ef yfirskrifa á gildið úr grunnlaunaspjaldi.
Til viðbótar þá var svæðið fyrir númer launaliðar stækkað, þannig að allt númerið sjáist strax þegar það er slegið inn og einnig er nú leyfilegt að eyða út upphæð úr upphæðasvæði og skilja svæðið eftir autt.
Þegar listinn Fastir liðir er keyrður upp úr hliðarvali > Kjarni > Mannauður, þá koma yfirskrifaðar færslur einnig bláletraðar í þeim lista. Inn í þann lista var einnig bætt inn eftirfarandi atriðum, en þau eru aðgengileg í tákninu "Velja dálka"
Kennitala starfsmanns; stéttarfélag hans, númer og nafn; samningur, launaflokkur og þrep; Greiðsluform og greiðslutíðni; Tímabil launaliðar, ef yfirskrifað; Fyrirtæki, númer og nafn; Skipulagseining, númer og nafn; kostnaðarstöð, númer og nafn og loks staða, númer og nafn.
.Pivot fyrir lífeyrissjóði
Hliðarval > Kjarni > Mannauður > Lífeyrissjóðir.
Bætt hefur verið við tákni fyrir pivot lista í tækjaslá listans Lífeyrissjóðir. Nú er hægt að greina á einfaldan hátt í pivot lista hversu margir greiða í hvaða lífeyrissjóð, hvernig aldurskipting er á milli sjóða o.s.frv.
Staðgreiðsla reiknast í 2. þrepi áður en 1. þrep er fyllt
Í þeim tilfellum þar sem starfsmaður með fleiri en eitt launamannanúmer var í tveimur útborgunum fyrir sama tímabil þá reiknaðist þrepaskipting staðgreiðslu ekki rétt, þetta hefur nú verið lagað.
Bæta við "splitter" í ávinnslur og launaáætlun þ.a. hægt sé að stækka svæði fyrir launamannatré
Nú hefur einnig verið bætt við "splitter" í skráningu á ávinnslum og launaáætlun.
Nú er hægt að minnka svæðið fyrir launamannatréð í skráningu á launum, ávinnslu og launaáætlun og stækka þannig skráningarsvæðið.
Vallisti þegar dálkahópur er valinn
Bætt var við fellivali í tákninu þrír punktar í svæðinu númer dálkahóps, þannig að hægt er að skoða hvaða dálkahópar eru til þegar nýr er stofnaður.
Launaseðlar birtast ekki í viðhengjaspjaldinu
Hliðarval > Starfsmenn> Valinn starfsmaður > Launaseðlar
Launaseðlar starfsmanna birtast ekki í viðhengjaspjaldinu. Fara þarf í spjaldið Launaseðlar til að skoða launaseðil starfsmanns.
Archive á launaseðlum þegar útborgun er lokað
Þegar launaútborgun er lokað, vistast launaseðlar í spjaldi starfsmanns, Launaseðlar.
Ef útborgun er opnuð aftur, er vistun eytt.
Launaseðlar vistast sem mynd eða skjal þannig að t.d. áramótastaða launaseðils í skjalaskáp breytist ekki þó útborgunum fjölgi.
Athugið! Eftirfarandi stillingar þurfa að vera til staðar, til þess að launaseðlar vistist eðlilega:
Hliðarval > Kjarni > Stofnskrár > Skjalaskápur - Eigendur skjala = Gildið er Pay og Eigandi skjals er Útborgun.
Hliðarval > Kjarni > Stofnskrár > Skjalaskápur - Tegundir skjala = Gildið er PaySlips og Tegund skjals er Launaseðlar
Launaseðlar í hliðarvalmynd, spjaldi starfsmanns og í launahring sækja archive-aða launaseðla
Ef útborgun er lokuð þá ætti að vera til launaseðill í skjalaskáp. Byrjað er á því að reyna að finna það skjal. Ef það er til þá er það opnað.
Ef það er ekki til þá birtast skilaboð svo notandinn sé meðvitaður um að launaseðillinn sé myndaður en ekki sóttur í skjalaskáp.
Launaseðlar í samþykktarferli launa
Ef samþykktarferli launa er keyrt eftir að útborgun hefur verið lokað, þá eru launaseðlar sóttir í "archive" En ef útborgun er opin, þá eru seðlar myndaðir jafn óðum og þeir eru keyrðir.
Í þessari aðgerð er hægt að stroka út starfsmannanúmerið og þá eru sóttir launaseðlar fyrir alla útborgunina. Ef starfsmaður er valinn þá er sóttur launaseðill fyrir þennan tiltekna starfsmann.
Ef útborgun er lokuð og launaseðlar til í archive þá er sótt heildarskjalið sem myndað er fyrir alla útborgunina í þeim tilvikum sem ekkert starfsmannanúmer er valið.
Archive á launaseðlum - Archive-a eldri útborganir
Hægt er að vista niður eldri launaseðla, en þá þarf fyrst að endurvinna áramótastöðu fyrir þá útborgun.
Aðgerðin er aðgengileg í hliðarvali > Kjarni > Laun > Aðgerðir = Vista launaseðla í skjalaskáp.
Athugið! Ef vista á eldri seðla, að byrja á því að endurvinna áramótastöðu fyrir elstu (fyrstu) útborgun ársins, vista seðla. Áður en vistaðir eru seðlar fyrir aðra útborgun ársins, þarf að endurvinna elstu útborgun plús næst elstu útborgun o.s.frv.
Áramótastaða er endurunnin í "Skrá" í launahring. Þar er farið í áramótastöðu valins starfsmanns, númer hans fjarlægt úr valskjá en útborgunarvísir skráður inn. Athugið að þegar endurvinna þarf áramótastöðu fyrir fleiri en eina útborgun í einu, eru útborganavísar aðgreindir með kommu.
Archive hnappur inni í launaseðilsreporti
Ef launaseðlar hafa ekki verið vistaðir niður þá kemur ný tækjaslá í skjámynd launaseðla. Þar er hnappur sem býður uppá að vista niður launaseðil valins starfsmanns.
Launaseðlar þegar vistaðir: Launaseðlar ekki vistaðir:
Svæðinu Verk bókhaldslykill bætt inn í fyrirtækjalista
Svæðinu "Verk bókhaldslykill" hefur nú verið bætt inn í fyrirtækjalistann.
Fastir launaliðir skráðir fram í tímann
Þegar fastir launaliðir voru skráðir fram í tímann þá var allt launatímabil útborgunar skoðað, nú er fyrirfram tímabil skoðað fyrir þá sem eru fyrirframgreiddir og eftirá tímabil skoðað fyrir þá sem eru eftirágreiddir.
Ef tímabil er yfirskrifað í föstum launaliðum þá ræður það, annars það sem skráð er á launaliðinn sjálfann, ef tímabil launaliðar er Sjálfgefið þá ræður greiðsluform launamanns.
Bunkainnlestur kemur nú á rétt tímabil
Bunkainnlestur sækir nú rétt tímabil launaliðar við innlestur, miðað við dagsetningar sem skráðar eru í útborgun.
Bókunarforrit fyrir skuldbindingu
Útbúið var bókunarforrit fyrir viðskiptavin til bókunar á skuldbindingu.
Launabókun - ný vídd
Bætt var við nýrri vídd fyrir launabókun <Nafn launamanns>
Sækir nafn starfsmanns og birtir það í bókhaldsskrá.
Setja inn fasta í áætlun
Ef hakað er í "Eyða færslum fyrir" þegar fasti er settur í áætlun þá eyðist bara sá launaliður sem er verið að lesa inn og bara í þeim mánuði sem er verið að lesa inn fyrir.
Númer útborgunar og bókunardagur úr ávinnsluskrá
Þegar ávinnslur voru fluttar yfir í skráningu launa þá kom ekki rétt útborgunarnúmer og ekki réttur bókunardagur, þetta hefur nú verið lagað. Athuga þarf að hafa hakað í "Yfirskrifa tímabil" svo færslan fái réttan bókunardag. Ef ekki er hakað í "Yfirskrifa tímabil" þá kemur bókunardagur úr ávinnsluskrá.
Reikniliðir í launaáætlun
Reikniliðir sækja nú einnig upphæðir í launatöflu sem merkt er Áætlun.
Vefskil
Yfirlit yfir sendingar vefskila fyrir skilagreinamánuð, skilar nú því útborgunarnúmeri sem valið er þegar vefskil eru send.