Þegar stofna þarf nýtt launamannanúmer á starfsmann sem er t.d. í tveimur störfum er byrjað á að finna starfsmanninn í flipanum Starfsmenn
Tvísmellir á launamannanr þannig að spjaldið opnist
Smellir á plúsinn í tækjaslánni, þá býr Kjarni til nýtt launamannanúmer. Setja þarf rétta dagsetningu í Gildir frá og vista nýju færsluna.
Til að nýja launamannanúmerið birtist er hægrismellt á nafnið í starfsmannatrénu og velur "Birta hætta"
Nú þarf að fylla út í spjöldin sem opnast fyrir neðan nýja launamannanúmerið og tengjast launaútreikningi
Ferillinn Stofna starfsmann
Einnig er hægt að stofna nýtt launamannanúmer í ferlinum Stofna starfsmann.
Þá er farið í Kjarni - Mannauður - Stofna starfsmann og byrjað á ferlinum og viðkomandi starfsmaður fundinn í Finna. Sjá mynd
Svo er haldið áfram með ferilinn og í spjaldinu Launamannanúmer er valinn grænn plús fyrir nýtt launamannanúmer
Nýja launamannanúmerið er valið og þá er hægt að halda áfram með ferilinn fyrir nýja launamannanúmerið.