Í Kjarna er aðgerð sem uppfærir heimilisföng starfsmanna m.v. breytingar sem gerðar hafa verið í þjóðskrá.
Aðgerðina er að finna í kerfisvalmynd undir Aðgerðir - Uppfæra heimilisföng starfsmanna.
Hægt er að keyra aðgerðina fyrir alla starfsmenn með ráðningarmerkinguna Í starfi eða aðra tiltekna ráðningarmerkingu. Einnig er hægt að keyra aðgerðina fyrir valinn starfsmann.
Þessa aðgerð er hægt að setja í sjálfvirka keyrslu þannig að hún keyri t.d. alltaf sjálfkrafa mánaðarlega. Endilega sendið póst á service@applicon.is ef þið óskið eftir aðstoð ráðgjafa Applicon við að setja upp sjálfvirka keyrslu fyrir þjóðskráruppfærsluna.