Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 4 Next »

Tegundir bréfa í hliðarvalmynd

Lista yfir Tegundir bréfa hefur nú verið bætt í hliðarvalmyndina. Þar er hægt að stofna nýjar tegundir bréfa eftir þörfum.

Þjóðskráruppfærsluforrit uppfæri aðra þó einn lendi á villu

Upp geta komið dæmi þar sem starfsmenn eru í utangarðsskrá Þjóðskrár Íslands og fyrirtæki eru almennt ekki með aðgang að þessari utangarðsskrá. Þar sem þessar kennitölur eru ekki til í almennu þjóðskránni þá kom villa í uppfærsluforritinu um að þessar kennitölur finndust ekki í þjóðskrá og forritið hætti að keyra. Þessu hefur nú verið breytt þannig að forritið keyrir í gegnum alla starfsmenn þrátt fyrir að einhver lendi á villu.

Starfsmannavefþjónusta sem skilar öllum starfsmönnum, EmployeesAll

Nýrri starfsmannavefþjónustu, EmployeesAll, hefur verið bætt við Kjarna. Þessi nýja þjónusta skilar öllum starfsmönnum, óháð því hvort þeir eru í starfi eða ekki auk upplýsinga um Ráðningarmerkingu og Tegund ráðningar svo hægt sé að sía níðurstöðurnar eftir þessum upplýsingum.
Slóðin á þessa vefþjónustu er mismunandi á milli viðskiptavina. Starfsmenn Applicon geta gefið nánari upplýsingar varðandi þjónustuna.

Eldri starfsmannavefþjónusta, Employees, skili ekki upplýsingum um starfsmenn á starfslokasamningi

Eldri starfsmannavefþjónustan, Employees, skilar ekki þeim starfsmönnum sem eru með Hættur skráð í svæðið Ráðningarmerking. Því hefur nú verið bætt við þjónustuna að hún skili ekki heldur þeim starfsmönnum sem skráðir eru með gildið Starfslokasamningur.

AD - Uppfærsla í sjálfvirkri keyrslu

AD uppfærsla getur nú keyrt í sjálfvirkri keyrslu.

AD - Varpanir per fyrirtæki

Nú er hægt að hafa mismunandi AD varpanir fyrir hvert fyrirtæki ef viðskiptavinur er með fleiri en eitt fyrirtæki.

AD - Gildi á nýja starfsmenn

Lagfært hefur verið að AD gildi skiluðu sér ekki á nýja starfsmenn.

AD – Starfsmenn sem ekki hafa hafið störf

AD tengingin leyfir nú flutning yfir í AD á starfsmönnum sem ekki hafa nú þegar hafið störf, þ.e. fyrsta færslan þeirra í Tenging innan fyrirtækis er dagsett fram í tímann.

Tenging við Sharepoint

Bætt hefur verið við tengingu þar sem Kjarni flytur gögn yfir í Sharepoint lista.
Starfsmenn Applicon stilla, í samráði við viðskiptavin, hvaða upplýsingar eiga að flytjast á milli kerfanna.

Aðgangur yfirmanna

Aðgangur yfirmanna var yfirfarinn m.t.t. starfsmanna sem voru áður undir yfirmanni en hafa færst annað í skipuriti. 

  • No labels