Uppsetning bókhaldslykla er í gegnum Launahring.
Smellt er á textann Bókhald vinstra megin við hringinn.
Í upphafi við stofnun bókhaldslykla er ferlið sem hér segir:
- Stofna Liði - sjá mynd af flæðiriti - bókhaldsaðgerðir
- Stofna Lykla
- Tengja Liði á launaliði
Liðir
Þegar smellt er á kassann Liðir í flæðiritinu kemur upp tóm tafla með tveimur dálkum Bókun vísir (númer) og Bókun (nafn).
Smellt er á græna plúsinn í tækjaslánni og númer vísis og nafn bókunar slegið inn.
Hægt er að velja um Tímabil, Bókunardagur eða Færsludagur. Sjálfgefið stendur fyrir Bókunardag. Smellt á Stofna og loka.
Ferlið endurtekið þar til búið er að stofna alla þá bókhaldsflokka sem þörf er á.
Lyklar
Næsta skref er að skrá bókhaldslykla inn á liðina.
Hægt er að smella á kassann Lyklar eða halda áfram í Liðum og smella þar á bláa undirstrikaða textann Launafærslur.
- Bókun vísir = númer Liðar sótt í táknið þrír punktar (hér 5 Stjórnarlaun)
- Fyrirtæki nr. = sótt í táknið þrír punktar
- Röð = 1
- Vídd = +
- Lykill = uppröðun hér fer eftir kröfum bókhaldskerfis.
Oftast er þessum svæðum skipt upp með semikommu. Hvert bil á milli semikomma kallast vídd, þannig er svæðið fyrir framan fyrstu semikommu kallað Vídd 0- Oftast byrjar lykillinn á númeri bókhaldslykils = Vídd 0
- Oftast er deildin á eftir fyrstu semikommu = Vídd 1
Hægt er að hægrismella í svæðið Lykill og velja úr eftirfarandi bókunarsviðum:
Bókunarsvið:
ávinnsla -
gjöf = Sækir kennitölu viðtakanda gjafar. Ef viðtakandi er starfsmaður í fyrirtækinu þá er kennitala viðtakanda skrá í textasvæði launaliðar með @ merki fyrir framan kennitöluna. Oftast kemur þetta úr excel innlestri.
greiðsluform = sækir númer greiðsluforms launafærslu, 1=fyrirfram og 2=eftirá
Inngjalddagi = sækir dagsetningu gjalddaga innheimtuaðila
kennitala = sækir kennitölu starfsmanns
kostnaðarstöð = sækir bókhaldslykil sem skráður er á kostnaðarstöðvar í stofnskrám
kostnaðarstöð nr = sækir vísisnúmer kostnaðarstöðva
launaliður = sækir númer launaliðar
launamaður = óvirkt
nafn launamanns = sækir nafn launamanns
líf = sækir bókhaldslykil í stofngögn lífeyrissjóðs
lífgjalddagi = sækir dagsetningu gjalddaga lífeyrissjóðs
lífknt = sækir kennitölu lífeyrissjóðs
lífnafn = sækir nafn lífeyrissjóðs
regla = óvirkt
reiknir = óvirkt
sam = óvirkt
skipulagseining = sækir bókhaldslykil sem skráður er á skipulagseiningar í stofnskrám
staða = sækir bókhaldslykil sem skráður er á stöður í stofnskrám
staðsetning = sækir bókhaldslykil sem skráður er á staðsetningar í stofnskrám
starfsmaður = óvirkt
starfsmannanúmer = sækir starfsmannanúmer starfsmanns
stétt = sækir bókhaldslykil sem skráður er á stéttarfélag
stéttgjalddagi = sækir dagsetningu gjalddaga stéttarfélags
stéttnafn = sækir nafn stéttarfélags
svið = sækir bókhaldslykil sem skráður er á skipulagseiningar í stofnskrám ef skipulagseining er svið
svæði = óvirkt
udirsvæði = óvirkt
verk = sækir bókhaldslykil sem skráður er á verk í stofnskrám
wage = sækir númer launaliðar