Versions Compared
Key
- This line was added.
- This line was removed.
- Formatting was changed.
Á Kjarna vef er virkni fyrir rafrænar undirritanir, m.a. rafræna ráðningarsamninga. Virknin í Kjarna nýtir Dokobit.
Hægt er að kalla fram rafrænar undirritanir frá þremur sjónarhornum á vefnum:
Frá hliðarvalmynd vinstra megin á vefnum
Hægt er að útbúa sniðmát fyrir margskonar samninga á vefnum. Smellt er á Sniðmát í hliðarvalmynd vinstra megin og þar valið Nýtt sniðmát eða farið í blýantinn til að breyta eldra sniðmáti.
Hægt er að kópera texta úr öðru skjali og einnig er hægt að velja inn viðeigandi mail merge svæði ef við á með því að smella á Bæta við gildi. Sniðmátið er svo vistað með því að smella á Vista sniðmát.
Hægt að leita eftir starfsmanni og/eða skipulagseiningu og velja þannig skjal til undirritunar.
Frá Ráðningum/Onboarding
Þegar starfsmaður er ráðinn í gegnum onboarding ferlið á vefnum kemur upp melding þar sem spurt er hvort eigi að útbúa rafrænan ráðningarsamning.
Þegar smellt er á já þá opnast gluggi þar sem valinn er inn viðeigandi ráðningarsamningur sem hefur áður verið uppsettur undir sniðmát. Nafn starfsmanns og nafn yfirmanns birtast sjálfkrafa í glugganum Undirritendur, en hægt er að taka út nafn eða velja inn annan aðila ef við á.
Skjalið sem valið er birtist svo hægra megin á skjánum.
Frá Teymið mitt
Smellt er á Teymið mitt í hliðarvalmynd vinstra megin og viðeigandi starfsmaður valinn. Þegar upplýsingar um þann starfsmann birtast er hægt að smella á Senda skjal til undirritunar.