Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Allir starfsmenn þurfa að vera notendur í Kjarna og þurfa að fá sent aðgangsorð til að skrá sig inn á vefinn. Til að stofna notendur í Kjarna er farið í XAP → Stofna notanda í Kjarna. Einnig er hægt að stofna marga starfsmenn sem notendur í einu lagi, sjá hér. ATH ef að fyrirtæki eru með tengingu við ActiveDirectory þarf ekki að senda starfsmönnum sérstakt lykilorð í Kjarna. 

...

Því næst þarf að setja hak við "Is Access" og smella á Hlutverk. Þar þarf að stofna nýja færslu og velja viðeigandi hlutverk. Þeir starfsmenn sem eiga eingöngu að hafa aðgang að starfsmannavef fá á sig hlutverkið Starfsmananvefur. 


Til þess að starfsmaður geti skráð sig inn á starfsmannavefinn þarf að vera tenging til staðar á milli starfsmannsins og notandans hans í EmployeeXapUser.List. Þegar nýr starfsmaður er stofnaður í Kjarna og notandanafnið hans hefur verið skráð á hann í spjaldið Starfsmaður þá stofnast sjálfkrafa færsla í þetta spjald. Ef notandanafn er aftur á móti skráð á starfsmann eftir að hann hefur verið stofnaður sem notandi í Kjarna þá þarf að bæta inn færslu í EmployeeXapUser.List þar sem tengdir eru saman viðkomandi notandi og starfsmaður. 

Það voru gerðar breytingar á þessari innskráningu í útgáfu 3.8.9.2 þannig að ef einhver notandi, sem áður komst inn á starfsmannavefinn, kemst ekki inn á hann efir þessa útgáfu af Kjarna þá þarf að bæta inn fyrir hann færslu í EmployeeXapUser.List. Hægt er að komast í EmployeeXapUser.List með því að slá það inn í skipanalínuna neðst í vinstra horni Kjarna og smella á enter.