Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Á Kjarna vef er virkni fyrir rafrænar undirritanir, m.a. rafræna ráðningarsamninga. Hér má sjá stutt video sem sýnir virknina.

Virknin í Kjarna nýtir Dokobit. Hafið samband við service@origo.is varðandi verð per undirritun.

Senda þarf póst á service@origo.is ef óskað er eftir því að virkja Rafrænar undirritanir á Kjarna vefnum. Hægt er að setja inn stillingar í Kjarna fyrir það hvaða texti sendist í tölvupósti til undirritenda, á hvaða skjalategund í Kjarna undirrituð skjöl vistast og á hvaða netfang tilkynning sendist þegar skjal hefur verið undirritað af öllum aðilum, t.d. á launafulltrúa.

Hægt er að kalla fram rafrænar undirritanir frá þremur sjónarhornum á vefnum:

1.Frá hliðarvalmynd vinstra megin á vefnum

Hægt er að útbúa sniðmát fyrir margskonar samninga á vefnum. Smellt er á Sniðmát í hliðarvalmynd vinstra megin og þar valið Nýtt sniðmát eða farið í blýantinn til að breyta eldra sniðmáti.

Hægt er að kópera texta úr öðru skjali og einnig er hægt að velja inn viðeigandi mail merge svæði ef við á með því að smella á Bæta við gildi. Sniðmátið er svo vistað með því að smella á Vista sniðmát.

Smellt er á Senda skjal til undirritunar úr hliðarvalmynd vinstra megin. Byrja þarf á að velja þann starfsmann sem á að skrifa undir skjal með því að smella á örina í glugganum Leita að starfsmanni, Þá opnast listi með öllum starfsmönnum og hægt að slá inn nafn viðkomandi í gluggann. Síðan er samningurinn valinn inn, annað hvort frá sniðmátum eða með því að uploada pdf. skjali.

Image RemovedImage Added

2.Frá Ráðningum/Onboarding

Þegar starfsmaður er ráðinn í gegnum onboarding ferlið á vefnum kemur upp melding þar sem spurt er hvort eigi að útbúa rafrænan ráðningarsamning.

Þegar smellt er á þá opnast gluggi þar sem valinn er inn viðeigandi ráðningarsamningur sem hefur áður verið uppsettur undir sniðmát. Nafn starfsmanns og nafn yfirmanns birtast sjálfkrafa í glugganum Undirritendur, en hægt er að taka út nafn eða velja inn annan aðila ef við á.

Skjalið sem valið er birtist svo hægra megin á skjánum.

3.Frá Teymið mitt

Smellt er á Teymið mitt í hliðarvalmynd vinstra megin og viðeigandi starfsmaður valinn. Þegar upplýsingar um þann starfsmann birtast er hægt að smella á Senda skjal til undirritunar.