Þegar starfsmaður lætur af störfum hjá fyrirtæki er notuð aðgerðin að gera upp laun við starfslok til að gera upp við hann orlof og aðrar ávinnslur. Aðgerðin er aðgengileg í launaskráningar myndinni.
Aðgerðin sækir áunnið orlof, orlofsuppbót og desemberuppbót í þegar uppfærðar útborganir, ásamt þeim ávinnslum sem mögulega eru í núverandi útborgun ásamt mögulegum orlofsúttektum. Þessu er skilað inn í launaskráningu starfsmannsins og skuldbindingin núllast út. | |
Ávinnslurnar koma inn í launaskráninguna í tvennu lagi, annars vegar rauðar færslur sem eru ávinnslurnar og hins vegar ljósbláar færslur sem eru launagreiðslur.
Þegar starfsmaður hefur fengið launauppgjör er grunnlaunaspjaldi starfsmanns lokað með til dagsetningu síðasta dag útborgunarmánaðar. |
...