Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.
Comment: Version published after converting to the new editor


 Til að senda skilagreinar til innheimtuaðila er smellt á Skila í launahringnum. 

 Þetta svæði er aðeins aðgengilegt í lokaðri útborgun.

Tvær yfirmöppur eru í Skilagreinum í Skila, en mismunandi er eftir viðskiptavinum hversu margar möppur eru þar undir.

Fyrsta mappan,  Útborgun sem hér er merkt: = 2759 kemur hjá öllum. Undir þessari möppu eru skilagreinar til þeirra innheimtuaðila sem fá skil fyrir alla útborgunina í einu:

  • Banki, skilagrein vegna launa og orlofsgreiðslna
  • Gjaldheimtur, eins og Innheimtustofnun Sveitarfélaga og Ríkisskattstjóra
  • Senda sjóði með tölvupósti - stéttarfélög og lífeyrissjóðir sem fá skilagreinar sendar fyrir alla útborgunina, óháð skilagreinamánuði.
  • Senda sjóði með vefskilum - stéttarfélög og lífeyrissjóðir sem fá skilagreinar sendar fyrir alla útborgunina, óháð skilagreinamánuði.

Seinni mappan, Skilagreinamánuður, hér merkt : Febrúar 2018 kemur líka hjá öllum, þar sem staðgreiðslu er ávallt skilað skv. skilagreinamánuði.

  • Staðgreiðsla
  • Senda sjóði með tölvupósti
  • Senda sjóði með vefskilum

Ef enginn sjóður er skilgreindur þannig að senda eigi með tölvupósti þá myndast sú mappa ekki.  Mappa myndast ekki nema eitthvað sé í henni.



Þegar myndin opnast kemur hakað við innheimtuaðilana „Senda vefskil" sjálfkrafa á hverjum sjóði.
Þegar búið er að senda þá hverfur hakið. Ef ekki á að senda fyrir ákveðinn innheimtuaðila að þessu sinni þá er hakið tekið af viðkomandi innheimtuaðila. 
Upp kemur spurning hvort örugglega eigi að sleppa að senda á viðkomandi innheimtuaðila og smellt á já ef það er raunin.

Ef senda á aftur á ákveðinn innheimtuaðila er hægri smellt á þann innheimtuaðila og velja Senda með vefskilum.  Taka út gildið 2 í valskjá undir flipanum Aðgerð

Einnig þarf að haka við innheimtuaðilann í skjámyndinni og þá kemur upp spurningin hvort það eigi örugglega að senda aftur.

Ef að villa er í sendingu kemur kerfið upp með villuglugga. Villumeldingin kemur á hægri hlið skjámyndar og svarið frá vefnum kemur fyrst stutt í svæðið Skilaboð og síðan nákvæmari í svæðið Nánari skila.


Að sendingu lokinn bætast við nýjar upplýsingar í reitinn Móttekið, en það er svarið sem Kjarni fær sent frá Innheimtuaðilum og sýnir hvaða upphæð skráð er móttekin hjá þeim.


ATH! Þegar nýir aðilar bætast við í vefskilum, þá þarf að sækja þær upplýsingar inn á skilagrein.is. Það er gert með því að keyra eftirfarandi skipanir:

Slá þarf inn skipanir í þessari röð: ·

Innheimtuaðilar: · Skipun: WebCollector.ToPayCollector · Vefþjónusta: http://www.skilagrein.is/info/webservices/CollectorEntity.xml ·

Sjóðir: · Skipun: WebFund.ToPayCollectorFund · Vefþjónusta: http://www.skilagrein.is/info/webservices/FundEntity.xml

...