Í glugganum sem opnast eru efst upplýsingar um valda útborgun. útborgunar númer valinnar útborgunar. Þar fyrir neðan er síðan hægt að velja inn ákveðinn launamann með því að ýta á punktalínuna.
Einnig er hægt að sækja fasta liði fyrir ákveðin samning eða ákveðin launalið. Neðst í aðgerðasvæðinu er valin sú aðgerð sem á að keyrast þegar launaliðir eru sóttir. Haka þarf við sækja fasta launaliði til að þeir verði sóttir.
Ef búið er að sækja fasta launaliði áður þarf að setja hak í Eyða föstum launum fyrir. Í flestum tilvikum er gott að hafa alltaf hak í þessum reit því annars koma allir fastir liðir tvöfaldir inn. Ef það gleymist að setja hak í þennan reit og fastir launaliðir birtast tvisvar hjá öllum starfsmönnum er hægt að keyra aftur þessa aðgerð, setja hak í Eyða föstum launum fyrir og þá eyðast allar fyrri færslur út.
Ef að það er sett hak í Reikna laun þá reiknar kerfið laun út frá þeim föstu liðum sem voru sóttir og þeim launaliðum sem búið er að skrá í útborgun. Athugið að það er alltaf hægt að reikna laun aftur síðar. Einnig er hægt að sækja fasta launaliði á einstaka launamenn í skráningarmynd launa.
|