...
Reikna laun við stofnun útborgunar | |
---|---|
Hægt er að reikna laun þegar útborgun er stofnuð. Það er gert með því að setja hak í Reikna laun neðst í glugganum sem opnast þegar útborgun er stofnuð. |
Reikna laun í launahring | |
---|---|
Hægt er að reikna laun hvenær sem er í opinni útborgun í gegnum launahringinn. Það er gert með því að smella á „Reikna laun" en þá opnast valmynd. | |
Í efri hluta valmyndar eru upplýsingar um valda útborgun. Undir skilyrði er hægt að velja ákveðinn eða ákveðna starfsmenn. Ef dálkarnir eru auðir reiknar kerfið laun fyrir alla launamenn í valinni útborgun. Ef breytingar hafa orðið á launatöflum frá því að laun voru síðasta reiknuð er sett hak við „Endursækja upphæð í launatöflu" |
...
Hlutföll og deilitölur | |
---|---|
Á mánuði eru að jafnaði 21,67 virkir dagar. Kjarni nota deilitöluna 21,67 þegar mánuður hefur færri en 22 virkir dagar. Ef starfsmaður hefur unnið 15 daga í mánuði þar sem virkir dagar eru færri en 22 er dæmið svona; 15/21,67 = 0,6922 | |
Ef mánuður er með fleiri en 22 virka daga er ekki hægt að nota deilitöluna 21,67 því ef starfmaður starfsmaður vinnur 22 virka daga í mánuðinum og kerfið er að deila með 21,67 þá fær hann meira en 1 mánaðarlaun 22/21,67 =1,015228 Því notar Kjarni deilitölu fjölda virkra daga í mánuði í þeim tilvikum. Ef virkir dagar eru 23 og starfsmaður hefur unnið í 15 daga þá er dæmið svona; 15/23 =0,6522 |
...