...
Bætt hefur verið við virkni þannig að hægt sé að birta ýmsar "spurningar" á starfsmannavef og fá þar samþykki starfsmanns við þessum atriðum. Sjá nánar hér.
Skattkort á starfsmannavef
Nú er hægt að opna fyrir það að starfsmenn geta sjálfir skráð inn upplýsingar um skattkort á starfsmannavef.
Hægt er að skrá gildi í Nýtingarhlutfall, Ónotaður persónuafslattur og Virkt frá og með. Hámark upphæðar í ónotaður persónuaflsáttur er reiknað út miðað við dagsetningu í Virkt frá. Starfsmaður getur því ekki skráð hvaða upphæð sem er í þetta svæði. Í virkt frá er hægt að skrá núverandi mánuð og svo fram í tímann. Ef nýta á skattkort aftur í tímann er sú upphæð sett í ónotaður persónuafsláttur.