Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Töfluupphæðir


Einnig er hægt að hægri smella á gildistíma samnings og komast í Töfluupphæðir saman.



Töfluupphæðir

Undir töfluupphæðir er hægt að skoða fjárhæðir valinna launaliða.

Hægt er að skrá þá launaliði sem óskað er að birtist með því að setja inn undir Stillingar - Gildi með skipuninni  PayTable.Amount.Wages“ og númer launaliða skráð í gildi.


Ef ekkert er skráð er hægt að slá inn þá launaliði sem óskað er eftir að sjá upphæðir fyrir

Þegar smellt er á hnappinn  Töfluupphæðir“  birtist valmynd þar sem hægt er að skrá inn valmöguleika fyrir listann.




Smellt er á framkvæma til að kalla fram listann sem birtir fjárhæðir valinna launaliða niður á launaflokka og þrep.


Hlutföll


Image Modified


Í þennan flipa eru skráð inn hlutföll launaliðar, þ.e.a.s. hlutfall af launaupphæð í launatöflu.

Ef aðeins er sett hlutfall í launatöflu nr. 0 en ekkert skráð í aðrar launatöflu, sækir Kjarni hlutfallið í launatöflu nr. 0

    Dæmi um svona launalið gæti verið yfirvinna ef hún reiknast alltaf 0,1385% af launum starsmanns þarf einingis að setja þann launalið í töfllu nr. 0


Ef hlutfall dagvinnu er miðsjafnt eftir vinnuskyldu starfsmanna þarf að setja rétt hlutfall í hverja launatöflu fyrir sig

Dæmi: Dagvinnutímakaup starfsmanns er 0,615 af launum  (launaliður 130) reiknast sem 0,615% af launum í launatöflu.


Ef álag reiknast sem hlutfall af dagvinnu þarf að setja rétt hlutfall á hvern launalið fyrir sig:

Hér fyrir neðan má sjá hvernig hlutfallið er reiknað:

Hafa þarf þetta í huga ef hlutfall dagvinnutíma er að breytast t.d. vegna styttingar á vinnuskyldu

Image Modified



Fastar

Image Modified


Í fasta eru skráðir inn launaliðir þar sem hver eining hefur fasta krónutölu. 


Dæmi: Starfsmaður greiðir fast gjald í mötuneytis áskrift á hverjum mánuði. Launaliðurinn er 7400 og gjaldið er 9.000 pr. mánuð.

Fasti er skráð á samning núll en einnig er hægt að skrá á samning ef ekki á að nota sömu krónutölu í öllum samningum fyrir ákveðin launalið


Aldurshækkanir

Image Modified


Í flipanum aldurshækkanir eru settar inn þær reglur sem gilda um hækkanir á launum samkvæmt líf- eða starfsaldri.

Þar undir eru settar inn reglur sem varða orlofshækkanir, launaflokka – og þrepahækkanir, álagshækkanir og aukaflokks hækkanir. 



Reikniliðir / Hópar

Image Modified


Hægt er að skrá reikniliði/hópa beint inn á kjarasamninga. Á myndinni sést að ef starfsmaður sem fær greidd laun skv. þessum kjarasamningi, fær greiddan launalið 1000 Mánaðarlaun þá á hann að fá launaliðinn 1100 Bónus í sama hlutfalli. Reikniliðinn sjálfann þarf að stofna sérstaklega og er hann sóttur í fellival í gegnum táknið þrír punktar. Bónus prósentan kemur úr reikniliðnum en einnig er hægt að yfirskrifa hana hér í reitnum Gildi.


Reiknihópar virka á sama hátt og reikniliðir en þeir hafa það fram yfir reikniliði að reiknihópur reiknast einnig ofan á reikniliði. 
Þegar breytingar verða á launatöflum t.d. við gerð nýrra kjarasamninga er keyrð aðgerðin hækka launatöflur í tækjaslánni.

Einnig er hægt að setja marga reikniliði í sama reiknihóp


Réttindi                                                                                                                                            

Image Modified


Hægt er að skilgreina veikindarétt starfsmanna beint inn á kjarasamning eftir því sem við á.

Stillingarnar eru settar inn miðað við þann starfsaldur sem skilgreindur er í viðkomandi samningi.

Fyrir veikindarétt vegna barna þarf að setja hak í svæðið "Réttindi barna"

Ef eyða þarf launatöflu

Eyða launatöflu - eyða fyrst upplýsingum úr flipum

Image Modified

Image Modified


Ef eyða þarf launatöflu þarf að byrja á því að eyða upplýsingum úr flipunum Þrep, Hlutföll, Fastar, Aldurshækkanir, Reikniliðir/Hópar og Réttindi og smella á vista.

Að því loknu er skrifuð eftirfarandi skipun inn í skipanagluggan í neðra vinstra horni:

PayTablePeriod.List


Eyða launatöflu

Image Modified

Image Modified

Skipunin PayTablePeriod.List skilar lista yfir allar launatöflur í Kjarna.

Til að vera öruggur um að eyða réttri launatöflu er Vísir dreginn inn í listann.

Rétt lína valin og henni eytt með rauðum mínus í tækjaslá.


Lesa inn nýjar upphæðir í þrep í launatöflu sem er í notkun


Image Modified

Ef lesa þarf inn nýjar fjárhæðir í launatöflu er mælt með að byrja á því að hækka eldri launatöflu Hækka launatöflu  um 0 og setja inn nýja gildistímann og eyða svo launaflokkum í töflunni áður en nýir launaflokkar eru lesnir inn.


Kosturinn við að afrita eldri töflu á nýja dagsetningu er að þá afritast allir flipar með (Hlutföll - Fastar - Aldurshækkanir - Reikniliðir/Hópar og Réttindi).

Þegar kominn er inn nýr gildistími fyrir töfluna þarf að eyða launaflokkunum sem fyrir eru og lesa inn launaflokka og þrep

Image Modified

Gera þarf excelskjal skv. myndinni hér fyrir til hliðar með launaflokkum og þrepum, ásamt fjárhæðum sem koma eiga inn í launatöfluna:


Launataflan þarf að vera á excel formi, en vistuð sem csv skjal.

Skrá þarf fyrirsagnir dálkanna sem hér segir:

Í dæminu hér á að lesa inn í launatöflu nr. 900 sem gildir frá 1. jan. 2016

900:01.01.2016  (Þessi lína á að fylgja öllun línum launatöflunnar

Launaflokkur nr. 123   og í þrepi 0 á að koma 100000

Athugið að það má alls ekki hafa punkta til að skipta þúsundum í upphæðum, dæmi: 100000 en ekki 100.000 !

Þegar excel skjalið með nýrri launatöflu er tilbúið er skipunin skráð í Kjarna.

Image Modified

Image Modified


Þegar skipun er keyrð opnast þessi gluggi.

Sækja þarf skalið sem gert var fyrir launatöfluna með því að smella á hnappinn 

Setja hak við Stofna og smella svo á lesa

Image ModifiedFærslurnar koma svona inn og þá þarf að muna að smella á vista hnappinn

Stofna nýja launatöflu


Image Modified

Kjarasamningurinn er stofnaður með því að smella á grænan plús Image Modified   Launatöflum.

Í flipan sem opnast er skráð númer, nafn og gildistími kjarasamnings


Velja svo Framkvæma

Image Modified

Hækkun launatöflu

Upplýsingar um það hvernig á að Hækka launatöflu er skráð í kaflann Ýmsar aðgerðir, en HÉR er flýtileið.

...