Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Á starfsmannavefnum er hægt að birta upplýsingar um þá styrki sem starfsfólki stendur til boða. Hægt er að sýna upplýsingar/leiðbeiningar um viðkomandi styrk, hafa möguleika á að vista viðhengi með og/eða hafa hlekk á umsóknarform á annarri síðu, ef við á. Ef viðhengi er vistað með þá verður aðgengilegt mannauðsdeild í spjaldinu Viðhengi í Kjarna og aðgengilegt starfsmanninum sjálfum í Skjalaskáp á starfsmannavef. Einnig er hægt að láta viðhengið sendast í tölvupósti á tiltekið netfang um leið og það er vistað. 

...

Á upphafssíðu starfsmannvefs er hægt að birta yfirlit yfir þá styrki og þá heilsueflingu sem stendur starfsfólki til boða. Það er stillingaratriði hvort þessar flísar birtist á upphafssíðu og er það stillingin Employee.Web.Dashboard í Vefgildi sem stýrir því, sjá Starfsmannavefur - stillingar

...

  1. Í Nafn er skráð sú fyrirsögn sem á að birtast á viðkomandi flís á starfsmannavefnum. 
  2. Tegund styrks tilgreinir hvort um Styrk eða Heilsueflingu er að ræða upp á flokkunina og birtingu á flísum. 
  3. Birta segir til um hvort sækja eigi upphæð í launaskráninguUpphæð, dagsetningu í fasta launaliðiDagsetning, eða hvorugt, Ekkert
  4. Launaliður nr. segir til um hvaða launalið á að sækja upplýsingar fyrir í launaskráningu eða föstum launaliðum
  5. Launaliður sýnir nafn þess launaliðs sem skráður var í Launaliður nr. 
  6. Sniðmát vísir er númer þess sniðmáts sem að birta texta á vefnum úr. Sniðmát er aðgengilegt í Kjarni > Stofnskrár > BréfPassa þarf að hafa textann ekki of langan svo hann rúmist örugglega á flísinni. Um 9 línur af texta komast fyrir á flísinni
  7. Sniðmát birtir nafn viðkomandi sniðmáts. 
  8. Hlekkur er vefslóð á síðu sem hægt er að vísa á. Ef vefslóð er skilgreind þarna þá birtist hnappurinn Sækja um á viðkomandi flís á starfsmannavefnum. 
  9. Tegund skjals vísir segir til um á hvaða skjalategund skjal á að vistast á ef starfsmaður á að geta hengt viðhengi við. 
  10. Tegund skjals er nafn viðkomandi viðhengjategundar. 
  11. Netföng segir til um á hvaða netfang/netföng viðhengið á að sendast á, ef við á. 
  12. Ráðningamerking er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi ráðningarmerkingar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna. Ef valið er Óskilgreint þá birtast upplýisngarnar hjá öllum starfsmönnum. 
  13. Tegund ráðningar er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi tegundir ráðningar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna. Ef valið er Óskilgreint þá birtast upplýisngarnar hjá öllum starfsmönnum. 

...