Í Kjarna er hægt að skila kjarakönnun Intellecta með einföldum máta. Áður en könnuninni er skilað þurfa viðskiptavinir að setja inn viðeigandi forsendur í kerfið. Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um hvaða upplýsingar þarf að setja inn svo hægt sé að skila kjarakönnun beint úr kerfinu. Eftirfarandi spjöld eru notuð:
- Stofnskrár → Menntun - Gráður : Menntunarstig
- Stofnskrár → Menntun : Menntunarsvið Háskólamenntaðra er skráð í Námsleið
- Stofnskrár → Stöður : Eðli starfs, starfssvið, ábyrgðarstig, mannaforráð, földi undirmanna, vaktavinna, starfslýsing
- Mannauður → Intellecta - spjald : Menntunarsvið fyrir verk- og tæknifræðinga, tryggingar, frístundastyrkur, grænn ferða- eða samgöngustyrkur.
- Mannauður → Tengingar innan fyrirtækis : Staða
- Mannauður → Starfsmaður : Fæðingarár, kyn, fyrsti ráðningardagur
- Mannauður → Grunnlaun : Launaþróun
- Mannauður → Orlof : Orlofsdagar á ári
- Mannauður → Fastir liðir : Bifreiðahlunnindi, bílastyrkur. ATH! launaliðir skráðir í dálkalista.
- Mannauður → Lífeyrissjóður : Mótframlag í séreign
- Mannauður → Vinnutími : Starfshlutfall
Gráður | |
---|---|
Fara þarf inn í listann Menntun - Gráður og setja inn réttar skilgreiningar á þær gráður sem skráðar eru í kerfið Listinn er aðgengilegur í gegnum hliðarvalmynd; Kjarni → Stofnskrár → Menntun - Gráður | |
Fljótlegasta leiðin til að vinna með listann er að breyta honum í Select lista með því að smella á í tækjastikunni. | |
Því næst þarf að fara í gegnum hverja gráðu fyrir sig og : a) Setja hak í þær gráður sem teljast Grunngráður b) Velja velja úr valstiku hvort að menntun sé:
Ef Annað er valið þarf að setja frekari lýsingu á því í dálkinn þar fyrir aftan. | |
MUNA AÐ VISTA ÁÐUR EN LISTANUM ER LOKAÐ |
...
Námsleiðir | |
---|---|
Fara þarf inn í listann Námsleiðir og setja inn réttar skilgreiningar á þær námsleiðir sem skráðar eru í kerfið Listinn er aðgengilegur í gegnum hliðarvalmynd; Kjarni → Stofnskrár → Námsleiðir | |
Fljótlegasta leiðin til að vinna með listann er að breyta honum í Select lista með því að smella á í tækjastikunni. | |
Skilgreina þarf menntunarsvið fyrir allar námsleiðir sem skráðar eru í kerfið. Ef valið er Annað þarf að setja inn lýsingu í dálkinn þar hliðin á. | |
MUNA AÐ VISTA ÁÐUR EN LISTANUM ER LOKAÐ |
...
Stöður | |||
---|---|---|---|
Fara þarf inn í hverja stöðu fyrir sig og setja inn réttar skilgreiningar á allar stöður sem skráðar eru í kerfið. Listinn er aðgengilegur í gegnum hliðarvalmynd; Kjarni → Stofnskrár → Stöður | |||
Fljótlegasta leiðin til að vinna með listann er að breyta honum í Select lista með því að smella á í tækjastikunni. | |||
Intellecta ábyrgðarstig: Velja þarf ábyrgðarstig viðkomandi stöðu.
| |||
Intellecta - Vaktavinna Hér þarf að merkja inn hvort að starfsmenn sem gegna viðkomandi stöðu vinni vaktavinnu eða ekki. | |||
Intellecta - Grunnstarfssvið (Hugbúnaðarfólk) Þessi dálkur á aðeins við um hugbúnaðarfólk. Hér þarf að velja inn grunnstarfssvið þeirra sem eru í slíkum störfum. Í öðrum tilvikum er þessi dálkur hafður auður. Ef valið er annað úr listanum þarf að setja inn lýsingu í dálkinn þar fyrir aftan. | Intellecta - Menntunarsvið (Verk- og tæknifræðingar) Þessi dálkur á aðeins við um verk- og tæknifræðinga. Hér þarf að velja inn hvaða menntun þeir starfsmenn sem gegna viðkomandi stöðu hafa. Ef valið er annað þarf að setja inn lýsingu í dálkinn þar fyrir aftan. Starfssvið Skoða á störf viðkomandi starfsmanns, hvað viðkomandi starfsmaður gerir í vinnunni, frekar en að skoða stöðu hans í skipuriti eða starfstitil. Velja á þann flokk sem passar best við viðkomandi. | Intellecta - Starfssvið er ekki með fellival eins og er í listanum Stöður, opna þarf hverja stöðu til að bæta inn gildi. | |
MUNA AÐ VISTA ÁÐUR EN LISTANUM ER LOKAÐ |
Fara þarf inn í hverja og eina skipulagseiningu og setja inn réttar skilgreiningar á þær skipulagseiningar sem eru i kerfinu.
Listinn er aðgengilegur undir Kjarni → Stofnskrár → Skipulagseiningar
Intellecta - Spjald | |
---|---|
Þetta spjald er aðeins aðgengilegt pr starfsmann, Fljótlegasta leiðin til að vinna með listann er að breyta honum í Select lista með því að smella á í tækjastikunni. Tryggingar á ári og Menntunarsvið (Verk- og tæknifræðíngar) bjóða upp á fellival. Önnur svæði þarf að handslá inn í. | |
MUNA AÐ VISTA ÁÐUR EN LISTANUM ER LOKAÐ |
Dálkalisti
Velja þarf inn viðeigandi launaliði í rétta dálka
...