Á starfsmannavefnum er hægt að birta upplýsingar um þá styrki sem starfsfólki stendur til boða. Hægt er að sýna upplýsingar/leiðbeiningar um viðkomandi styrk, hafa möguleika á að vista viðhengi með og/eða hafa hlekk á umsóknarform á annarri síðu, ef við á. Ef viðhengi er vistað með þá verður aðgengilegt mannauðsdeild í spjaldinu Viðhengi í Kjarna og aðgengilegt starfsmanninum sjálfum í Skjalaskáp á starfsmannavef. Einnig er hægt að láta viðhengið sendast í tölvupósti á tiltekið netfang um leið og það er vistað. 

...

  1. Ef um er að ræða t.d. líkamsræktarstyrk að ákveðinni upphæð þá er hægt að birta upphæðina sem starfsmönnum stendur til boða auk upplýsinga um þá upphæð sem starfsmaður hefur þegar nýtt. Upphæðin sem þegar hefur verið nýtt er sótt í tiltekinn launalið í launaskráninguáramótastöðu launa
  2. Ef aftur á móti um er að ræða t.d. samgöngustyrk þá er hægt að birta upplýsingar um hversu lengi styrkurinn gildir og er dagsetningin þá sótt í endadagsetningu tiltekins launaliðar í föstum launaliðum. 

...

Á upphafssíðu starfsmannvefs er hægt að birta yfirlit yfir þá styrki og þá heilsueflingu sem stendur starfsfólki til boða. Það er stillingaratriði hvort þessar flísar birtist á upphafssíðu og er það stillingin Employee.Web.Dashboard í Vefgildi sem stýrir því, sjá Starfsmannavefur - stillingar

...