Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Tvær leiðir eru til að skrá sig inn á vefinn. Ef fyrirtæki eru með Single Sign On tengingu í kerfinu dugir að smella á Windows innskráning. Ef fyrirtæki eru ekki með slíka tengingu þarf að senda notanda notendanafn og lykilorð, eða nota sama notendanafn og lykilorð og það sem notað er til að skrá sig inn í Kjarna ef notendur eru að vinna í Kjarna.

Aðgangur

Til að geta gefið starfsmönnum fyrirtækis aðgang að vefnum þurfa notendanöfn þeirra að vera skráð í spjaldið Starfsmaður. Einnig þarf netfangið þeirra að vera skráð í spjaldið Starfsmaður.

Image Removed

Að veita aðgang að

...

starfsmannavefnum

Allir starfsmenn þurfa að vera notendur í Kjarna og þurfa að fá sent aðgangsorð til að skrá sig inn á vefinn (ekki þarf að senda aðgangsorð ef notað er Single sign on). Til að stofna notendur í Kjarna er farið í flipann Aðgerðir > Stofna notanda. .

Upplýsingar um hvernig stofna á notanda í Kjarna er hægt að sjá hér: Stofna notanda og gleymt lykilorð

Einnig er hægt að stofna marga starfsmenn sem notendur í einu lagi, sjá hér.: Stofna marga notendur

ATH ef að fyrirtæki eru með tengingu við ActiveDirectory eða eru að nota Single sign on þarf ekki að senda starfsmönnum sérstakt lykilorð í Kjarna. 

Image Removed

Þegar smellt er á Skrá opnast gluggi þar sem valin eru þau hlutverk sem viðkomandi notandi á að vera með. Hakað er í Has Access og smellt á Hlutverk. Þar þarf að stofna nýja færslu og velja viðeigandi hlutverk. Þeir starfsmenn sem eiga eingöngu að hafa aðgang að starfsmannavef fá á sig hlutverkið Starfsmannavefur. 

Image Removed

Tengin milli notanda og starfsmanns

Til þess að starfsmaður geti skráð sig inn á starfsmannavefinn þarf að vera tenging til staðar á milli starfsmannsins og notanda hans. Er þessi tenging skráð í listann  EmployeeXapUser.List. Myndast þessi tenging sjálfkrafa þegar notandi er stofnaður
Aftur á móti getur verið að þessi tenging sé ekki til staðar hjá eldri viðskiptavinum og getur því þurft að handskrá þessa tengingu í EmployeeXapUser.List. Hægt er að komast í EmployeeXapUser.List með því að slá það inn í skipanalínuna neðst í vinstra horni Kjarna og smella á enter. 

Sjálfvirk stofnun notanda

Hægt er að setja inn stillingu þannig þegar starfsmaður er stofnaður , í Kjarna og notendanafnið skráð í spjaldið Starfsmaður að þá stofnist hann sem notandi og fær hlutverkið Starfsmannavefur. Mælt er með því að setja inn þessa stillingu ef starfsmenn eiga að fá strax aðgang að starfsmannavefnum þegar þeir hefja störf. Ef óskað er eftir því að fá þessa stillingu inn þarf að senda beiðni á service@origo.is 

Nánari upplýsingar má sjá hér: Notandi stofnaður sjálfkrafa þegar starfsmaður er stofnaður


Page Tree
root@self